Fasteignaleitin
Skráð 14. mars 2026

Þóristún 13

HæðSuðurland/Selfoss-800
175.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
513.421 kr./m2
Brunabótamat
84.000.000 kr.
Byggt 1965
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
21876805
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Þóristún 13, 800 Selfoss.

Um er að ræða fjögurra herbergja hæð í grónu hverfi, steinsnar frá miðbæ Selfoss. Húsið, sem er byggt árið 1965, er á tveimur hæðum og skiptist eignin í tvær íbúðir en á neðri hæð hússins er önnur íbúð á sér fastanúmeri. Eigninni fylgir bílskúr á neðri hæð ásamt geymslu. Íbúðin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu. Þvotthús er sameiginlegt á neðri hæð hússins. Húsið er steypt og steinað að utan, með bárujárni á þaki. 

Nánari lýsing eignar: 

Eignin er skráð 175,1 fm samkvæmt fasteignamati.
Gengið er inn í flísalagða forstofu með skáp og fatahengi. 
Þaðan er gengið inn í parketlagt hol þar sem er opið inn í stofu og borðstofu. Eldhúsið á hægri hönd og herbergisgangur á vinstri hönd. 
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með stórum gluggum og parketi á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á svalir þar sem er svo hringstigi niður á sólpallinn. 
Eldhúsið er með upprunalegri innréttingu og upprunalegum eldhústækjum. 
Svefnherbergin eru þrjú, rúmgóður fataskápur er í einu þeirra. 
Baðherbergið er með sturtuklefa, salerni og lítilli innréttingu. 
Lokaður stigagangur er niður í sameiginlegt rými þar sem sér geymsla íbúðar er og bílskúrinn, ásamt sameigjnlegu þvottahúsi með íbúð á neðri hæð. 

Lóðin er gróin og stór bakgarður í suður. Sólpallur og hellulagt bílaplan. 

Skemmtileg eign á fallegum stað á Selfossi í grónu hverfi. 
Í göngufæri frá nýjum miðbæ Selfoss og stutt í alla helstu verslun og þjónustu. 

****BÓKIÐ EINKASKOÐUN****

Nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnoðravellir 35
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hnoðravellir 35
Hnoðravellir 35
221 Hafnarfjörður
186,7 m2
Raðhús
414
723 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Sæviðarsund 34
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Sæviðarsund 34
Sæviðarsund 34
104 Reykjavík
181,1 m2
Raðhús
623
938 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Seljaland 22
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Seljaland 22
Seljaland 22
800 Selfoss
131,3 m2
Raðhús
413
593 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 1
3D Sýn
Bílastæði
Opið hús:31. okt. kl 15:30-16:00
Skoða eignina Lambamýri 1
Lambamýri 1
225 Garðabær
114 m2
Fjölbýlishús
312
876 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin