NÝTT Í SÖLU - FANNAFOLD 75. MJÖG FALLEGT 242,7 FM EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM RÓLEGUM ÚTSÝNISSTAÐ INNARLEGA Í LOKAÐRI GÖTU Á EFTIRSÓTTUM STAÐ Í GRAFARVOGI. SKIPTI SKOÐUÐ Á ÓDÝRARI EIGN.
Pantið einkaskoðun hjá Ingólfi Gissurarsyni lg.fs. í síma: 896-5222 netfang: ingolfur@valholl.is
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Fallegt, velskipulagt og vandað einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, alls 242,7 fm, auk 9 fm geymslu á baklóð. Húsið stendur innarlega í lokaðri götu á besta stað í Grafarvogi. Stutt í skóla, sundlaug, íþróttir, verslanir og fl. Möguleiki er að útbúa litla aukaíbúð á neðri hæðinni ef vill. Alls eru nú 6 svefnherbergi í húsinu. Góðar verandir, stórar útsýnissvalir í suður/vestur og falleg ræktuð lóð í Japönskum stíl. SKIPTI SKOÐUÐ Á 3-4 HERBERGJA ÍBÚÐ. SKIPULAG: NEÐRI HÆÐ: Forstofa með fatahengi. Innangengt í rúmgóðan um 33 fm innbyggðan bílskúr. Gott skápapláss í bílskúr og sjálfvirkur hurðaopnari. Hol með góðum hvítlökkuðum skápum. Innaf holi er flísalögð gestasnyrting með upphengdu salerni, handklæðaofni og vaskinnréttingu. Tvö stór (um 15 fm) herbergi eru svo innaf holinu bæði með skápum. Steyptur flísalagður stigi milli hæða.
2.HÆÐ: Stór stofa og borðstofa með uppteknum loftum klædd með Hlyn. Fallegur, nettur arinn í stofunni. Útgengt á stórar suður og vestur útsýnissvalir með GLÆSILEGU ÚTSÝNI yfir Akrafjall, Sundin, Reykjavík og fl. Innaf stofu er rúmgott eldhús með borðkrók, hvít/glans innrétting, flísar milli skápa, spanhelluborð, stálháfur, uppþvottavél fylgir og loft eru upptekin líka í eldhúsinu. Við hlið eldhús er rúmgott þvottaherbergi með góðri innréttingu, gluggum og bakútgangi, loft upptekin þar líka. Svefnálma: 4 svefnherbergi, skápar í tveimur herbergjum. Útgengt úr hjónaherberginu á baklóðina þar sem eru hellulagðar stéttar, krakkahús, 9 fm köld útigeymsla (bjálkahús), tveimur safnkössum og önnur köld geymsla undir þvottahúsverönd. Baðherbergi flísalagt með baðkari, sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni, innréttingu og glugga.
GÓLFEFNI: Flísar á forstofu, bílskúr, holi, gestasnyrtingu, stiga, stofu, borðstofu, eldhúsi, þvottaherbergi og baðherbergi. Dúkur á öllum svefnherbergjum.
Falleg ræktuð lóð í Japönskum stíl, góðar hellulagðar stéttar og fallegur trjágróður. Hellulagt bílaplan með hita. 3ja fasa 11kw Rafmagnshleðslutengill fyrir bíla, fylgir á útvegg við bílskúr. Einnig fylgir Gerfihnattadiskur á skorsteini með móttakara (er í notkun hjá seljendum). Þá fylgja einnig 4 eftirlitsmyndavélar utanhús sem eru tengdar og vakta hús+lóð vel (2 terrabite).
ANNAÐ: Eftirfarandi eru upplýsingar frá seljendum= Nýleg útihurð (aðalhurð). Húsið er hraunað að utan og var málað fyrir um 3 árum.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S:896-5222 ingolfur@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 35 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222. VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO 2015 til 2022, EÐA 8 ÁR SAMFLEYTT, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR 2017-2022.