Gimli fasteignasala kynnir: Vel viðhaldið einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr, samtals 208,2 fm skv. fasteignaskrá. Íbúðarrými samanstendur af: Anddyri, eldhúsi með borðkrók, 2 stofum, 4 svefnherbergjum, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahúsi. Svefnherbergi, utan eitt, eru í aflokaðri svefnálmu. Loft eru upptekin nema í svefnálmu, af gangi er aðgengi að stóru geymslulofti. Bílskúr er sérstæður en tengdur húsi með yfirbyggðu porti. Íbúð 170,0 fm, bílskúr 38,2 fm.
Nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 659-4044 og eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 773-7126, milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til halla@gimli.is og eða elinrosa@gimli.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: fataskápur, flísar á gólfi.
Þvottahús: innaf forstofu og útg. í bakgarð. Innrétting með vaski og flísar á gólfi.
Gestasnyrting: flísar á gólfi og veggjum.
Eldhús: rúmgott og bjart, gluggar á tvo vegu, eikarinnrétting og granít borðbekkir, flísar á gólfi. Gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, eyja með helluborði og háfi þar yfir.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum. Vegghengt salerni, baðkar, vaskur í innréttingu og snyrtiborð (g.r.f. sturtu þar sem snyrtiborðið er)
Stofur: tvær stofur eru í dagrými, önnur nýtt sem borðstofa í dag og hin dagstofa, báðar mjög rúmgóðar. Tvö þrep eru niður í dagstofuna og verður lofthæð við það mjög áhrifamikil, útg. í garð úr stofu. Parket er á gólfum.
Aðalsvefnherbergi: rúmgott, ágætt skápapláss. Parket á gólfi.
Barnaherbergi #1: aðgengi fyrir utan svefnálmu. Parket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi #2: parket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi #3: parket á gólfi, án skápa (stækkað fram á gang, sjá teikningu).
Bílskúr: epoxy á gólfi, sjálfvirkur opnari, heitt og kalt vatn. Geymsluloft.
Garður: afgirt hellulögð verönd að hluta, þ.m.t. fyrir framan bílskúr, góð bílastæði, heitur pottur og geymsluskúr.
Allt gler er nýl. endurnýjað, þakkantur nýl. og þak yfirfarið. Fyrir öllum gluggum í dagrýmum eru sérsniðnar rúllugardínur.
Niðurlag: Vel skipulagt fjölskylduhús sem hefur fengið gott viðhald.
Nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 659-4044 og eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 773-7126, milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til halla@gimli.is og eða elinrosa@gimli.is
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.