Eignamiðlun kynnir:
Falleg 56 fm íbúð á 3. hæð og efstu hæð í lágreistu vel höldnu fjölbýli við Frostafold 24 í Grafarvogi. Húsið er í rólegri og fjölskylduvænni götu. Aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar en gott bílaplan er fyrir framan hús og við tekur snyrtilegur framgarður. Opið stórt gróið svæði er aftan við hús og stutt er í leik- og grunnskóla, falleg útivistarsvæði og helstu þjónustu og verslanir. Allt í göngufæri.Gengið er inn í flísalagða
forstofu með fataskáp.
Á hægri hönd er nýlega endurnýjað
baðherbergi. Það er flísalagt. Rúmgóð „walk in“-sturta. Vegghengt salerni. Hvít innrétting með handlaug ásamt speglaskáp. Inn á baðherbergi er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Hol sem tengir saman aðrar vistverur íbúðar, þ.e.a.s. forstofu, svefnherbergi og stofu. Linóleumdúkur á gólfi.
Svefnherbergið er rúmgott með fataskápum meðfram heilum vegg. Linóleumdúkur á gólfi.
Eldhús sem hefur verið nýlega endurnýjað. Falleg hvít innrétting. Ofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél. Flísar á milli efri og neðri skápa. Linóleumdúkur á gólfi.
Rúmgóð
stofa með linóleumdúk á gólfi. Úr stofu er útgengt á skjólgóðar suðvestursvalir.
Frábært útsýni er úr íbúðinni og af svölunum.Íbúðinni fylgir 4,7 fm sérgeymsla sem er í sameign ásamt hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.Bílastæði eru í sameign úti á lóð. Garður er gróinn umhverfis hús.
Ofnar eru nýjir í íbúðinni
Nýlega var búið að endurnýja hluta glugga í íbúð. Húsið hefur verið múrviðgert og málað. Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook