Fasteignaleitin
Skráð 25. mars 2026

Grensásvegur 1C - 205

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
92.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.700.000 kr.
Fermetraverð
994.577 kr./m2
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25306384
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar fullbúnar nýjar íbúðir í lyftuhúsi við Grensásveg 1C, margar íbúðinna eru með glæsilegu útsýni.  

Við á Heimili fasteignasölu erum staðsett í næsta húsi (Grensásvegur 3) við þetta glæsilega fjölbýli. Hafið samband og við göngum með ykkur yfir götuna og sýnum samdægurs fullbúna sýningaríbúð.


*** FasteignaBRÚ brúar bilið, með aðeins 10% útborgun getur þú eignast nýja vandaða íbúð á besta stað miðsvæðis í Reykjavík, sjá nánar HÉR.***

Nánari lýsing íbúðar 0205
Stórglæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja 92,2 fm á 2. hæð með gólfsíðum gluggum og hita í gólfum. Fallegt útsýni.
Komið er inn í rúmgott anddyri með góðum fataskáp. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa. Rúmgott bjart eldhús með eyju og stofa með útgengi á svalir. Innaf eldhúsi er flísalagt þvottahús/búr með innréttingu. Stórt hjónaherbergi með fataskápum. Rúmgott barnaherbergi með skápum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara. Afhending í Maí 2026.
Myndir eru úr sambærilegri íbúð.  Heimasíða verkefnissins má finna hér


Frekari upplýsingar veita:
Anna Sigurðardóttir, as@heimili.is, 898-2017
Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is 617-5161
Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@heimili.is, 895-1098
Sigríður Lind Eyglóardóttir, sigridur.lind@heimili.is, 899-4703


Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Stutt lýsing Grensásvegs 1C.
Húsið er 14 íbúða vandað 4ra hæða fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum og með stórum gólfsíðum björtum gluggum. Þær eru afhentar fullbúnar með parketi, nema votrými sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Parka. Allt parket á gólfum er vandað harðparket. Innfelld LED lýsing í loftum. Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf. Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe.
Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Svalahandrið úr gleri.

Bílakjallari.
Í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum Parka sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt. Í fullbúnum bílakjallara eru hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Deilibílar
í bílakjallara er aðgengi að bílastæðum þar sem búið er að koma upp ON hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla og möguleiki á deilibílum frá Brimborg fyrir íbúa til daglegra nota.

Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimili fasteignasölu, Grensásvegi 3, 530-6500 eða á heimili@heimili.is


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Garðatorg 4
Bílastæði
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Garðatorg 4
Garðatorg 4
210 Garðabær
101 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eskivellir 9B
Skoða eignina Eskivellir 9B
Eskivellir 9B
221 Hafnarfjörður
84.8 m2
Fjölbýlishús
312
765 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1074 þ.kr./m2
66.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
127.1 m2
Fjölbýlishús
423
936 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin