Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Sérlega glæsilegar þakíbúðir í nýbyggingu við Kópavogshöfn í Kársnesi. Íbúðir á efstu hæðum eru með þaksvölum með stórbrotnu útsýni til fjalla og yfir hafið, m.a. til Bláfjalla og Bessastaða, auk víðáttumikils landslags höfuðborgarsvæðisins. Íbúðirnar eru með aukinni lofthæð og skilast tilbúnar til innréttinga. en verð fyrir fullkláraða íbúð má finna í Nánari lýsingu að neðan. Allar íbúðirnar eru búnar sérstöku loftræstikerfi. Rýmin eru björt og notaleg þökk sé gólfhita og stórum gluggum. Myndir eru úr sýningaríbúðum. Þakíbúðirnar eru aðeins sýndar í einkasýningu. Sýnum alla daga.
Allar nánari upplýsingar veita:
Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon lgfs. í s. 692 2704 og fridjon@miklaborg.is
Nánari lýsing; íbúð 420 er horníbúð með þaksvölum til suðvesturs og óhindruðu útsýni. Eignin skiptist í forstofu með fataskápum, alrými með rúmgóðri stofu, sjónvarpsstofu, borðstofu og eldhús með eyju. Möguleiki erá að setja upp arin í stofu og heitan pott á svalir. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, þar á meðal hjónasvíta með innangengu fataherbergi og sér baðherbergi. Þá er annað baðherbergi og sér þvottahús innan íbúðar. Þaksvalir eru 67,1 m2 og sér geymsla í kjallara er 40,1 m2. 2 bílastæði fylgja merkt B59 og B59. Frístundaskúr 0005. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027 Sjá nánar sölusíðu verkefnisins : www.vesturbakki.is
Auglýst verð miðaðst við að íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og hefur kaupandi þá kost á að haga hönnun og efnisvali eftir sínum stíl. Léttir milliveggir verða uppsettir samkvæmt samþykktum teikningum og skilalýsingu. Veggir spartlaðir og grunnaðir (1 umferð). Þakeinangrun fullfrágengin. Rakavarnarlag frágengið. Raflagnir ídregnar. Búið að draga í fyrir Free@Home hússtjórnunarkerfi. WC-kassar innbyggðir í veggi samkvæmt teikningum. Innbyggð box fyrir sturtu- og blöndunartæki (Grohe) uppsett í veggjum. Gólf tilbúin undir lagningu gólfefna. Í boði er að fá íbúðir afhentar fullkláraðar án megingólfefna og eftir atvikum frágang arins og útisvæðis. Verð verð á íbúð 420 miðað við slík skil er 370.000.000 kr. Kaupendur geta valið um hönnunarþema; Yl eða Stein. Innréttingar verða þá frá Parka og Voke III og vönduð tæki frá Siemens, þmt. helluborð með innbyggðri viftu, sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar. Frystiskápar og vínkælar í völdum íbúðum. Íbúðirnar verða búnar snjöllu hússtjórnunarkerfi frá Free@home sem gerir íbúum kleift aðstýra hitastigi, lýsingu, gardínum og fleiru. Tæknimaður sér um uppsetningu kerfisins í hverri íbúð og leiðbeinir um notkun. Nánari upplýsingar um endanleg skil fást hjá söluaðila.
Á Vesturbakka rísa 118 vandaðar eignir þar sem rík áhersla er lögð á fágaðan arkitektúr og nútímaþægindi.. Íbúðirnar einkennast af vönduðu efnisvali og vel útfærðu skipulagi. Alrými þeirra eru björt og rúmgóð. Til suðurs tekur við hafnarsvæði Kársness sem er í umbreytingu og Vesturbakki stendur þar sem spennandi framtíðarsýn Kópavogsbæjar er að taka á sig mynd. Skipulag svæðisins gerir meðal annars ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds. Fyrir framan Vesturbakka er gert ráð fyrir bryggju- og hafnaraðstöðu fyrir siglingafólk. Með tilkomu Fossvogsbrúarinnar styrkist tengingin við Reykjavík og miðborg hennar, ásamt háskólasvæðum..
Nánari upplýsingar veita : Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is og Friðjón Örn Magnússon lgfs. í s. 692 2704 og fridjon@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 228,1 | 300 | ||
200 | 228,1 | 300 | ||
200 | 240,5 | 350 | ||
200 | 240,5 | 350 | ||
200 | 230,9 | 340 | ||
200 | 238,2 | 320 |