Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Grænaborg 14 íb 101

FjölbýlishúsSuðurnes/Vogar-190
106.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fermetraverð
620.527 kr./m2
Fasteignamat
64.900.000 kr.
Brunabótamat
60.150.000 kr.
Mynd af Lilja Valþórsdóttir
Lilja Valþórsdóttir
www.prodomo.isEignalisti
Byggt 2022
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2512495
Landnúmer
230997
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
PRODOMO fasteignasala kynnir í sölu glæsilega, bjarta og rúmgóða 106,2 fm fimm herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og suðurverönd að Grænuborg 14 í Grænubyggð, Vogum.
Um er að ræða sérlega fjölskylduvæna endaíbúð á jarðhæð í vönduðu 12 íbúða fjölbýlishúsi. Eignin telur forstofu, hol, fjögur svefnherbergi (þar af eitt teiknað sem geymsla með glugga), flísalagt baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart alrými með fallegri eldhúseyju og útgengi á skjólsæla suðurverönd. Frábært aðgengi er að hleðslustöðvum á bílaplani.

***Eignin getur verið laus við kaupsamning


Nánari lýsing
Forstofa: Sérinngangur, fataskápur ásamt fatahengi og flísar á gólfi.
Hol: Bjart miðrými með vönduðu parketi sem tengir saman allar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Falleg og vönduð innrétting með miklu skápa- og vinnuplássi. Rúmgóð eldhúseyja með setplássi sem tengir eldhúsið skemmtilega við stofuna. Vönduð tæki fylgja, ísskápur og uppþvottavél ekki innbyggt en fylgja með.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými í samflæði við eldhús. Fallegir gluggar, parket á gólfi og beint útgengi út á sólríka suðurverönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart barnaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi IV / Geymsla: Rými með parketi á gólfi og glugga. Rýmið er teiknað sem geymsla samkvæmt teikningu en nýtist fullkomlega sem fjórða svefnherbergið eða vinnuherbergi.
Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísalagt á gólfi og hluta veggja. Hvít, stílhrein innrétting við vask, rúmgóð „walk-in“ sturta, upphengt salerni og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sólrík verönd í suður og tyrfð lóð.

***Endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi – aukin birta með gluggum á þremur hliðum og afar þægilegt aðgengi.
***Fjögur svefnherbergi – einstaklega sjaldgæft og eftirsótt skipulag í þessari stærðargráðu.
***Skjólsæl verönd í suður með beinu útgengi úr stofu.
***Eldhús með rúmgóðri eyju sem hægt er að sitja við í opnu, björtu alrými.
***Aðgengi að rafbílahleðslustöðvum á bílaplani.


Grænaborg 14 er nýlegt og sérlega glæsilegt tveggja hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum, teiknað af hinni virtu stofu Arkís arkitektar. Húsið er byggt á vandaðan máta, vel einangrað og klætt að utan með varanlegri álklæðningu sem lágmarkar viðhaldskostnað til framtíðar. Á malbikuðu bílaplani er gott aðgengi að rafbílahleðslustöðvum.
Staðsetningin í Grænubyggð er einkar fjölskylduvæn og róleg, þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslun.

Virkilega vönduð, rúmgóð og vel skipulögð fjölskylduíbúð á jarðhæð sem vert er að skoða!

***Sýnum samdægurs***

Allar nánari upplýsingar veita:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/02/202455.150.000 kr.60.500.000 kr.106.2 m2569.679 kr.Já
12/05/20222.630.000 kr.56.000.000 kr.106.2 m2527.306 kr.Já
12/05/20222.630.000 kr.56.000.000 kr.106.2 m2527.306 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarkardalur 21C - 103
Bjarkardalur 21C - 103
260 Reykjanesbær
108.2 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Vallarbraut 6
55 ára og eldri
Efsta hæð
Skoða eignina Vallarbraut 6
Vallarbraut 6
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
641 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Friggjarbrunnur 53
Bílastæði
Friggjarbrunnur 53
113 Reykjavík
102.7 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 13
3D Sýn
Skoða eignina Tryggvagata 13
Tryggvagata 13
101 Reykjavík
99.6 m2
Fjölbýlishús
211
1053 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin