Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2026

Hlunnavogur 13

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
182.8 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
820.022 kr./m2
Brunabótamat
93.200.000 kr.
Byggt 1967
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20207937
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Margir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulagt parhús á einni hæð á gróinni lóð innst í botnlanga í Vogahverfinu. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Góð aðkoma er að húsinu. Bílskúr með óskráðu millilofti. Sólskáli og heitur pottur. Frábært og fjölskylduvænt hús á eftirsóttum stað. 

*** Sækja söluyfirlit ***

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Um er að ræða nánar tiltekið Hlunnavog 13, 104 Reykjavík, F2020793. 5-6 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 182,8 fm, þar af er íbúðarrými 161,2 fm, bílskúr er skráður 21,6 fm. Íbúðarrými hússins skiptist í anddyri, snyrtingu, húsbónda/forstofuherbergi, skála, eldhús, borðstofu og stofu. Stór sólstofa (24 fm) með gólfhita og kamínu út frá stofu. Á herbergjagangi eru nú tvö svefnherbergi (áður þrjú) og baðherbergi. Sérþvottahús og búr inn af eldhúsi með útgengi út á timburverönd. Bílskúr er snyrtilegur, rúmgóður með óskráðu millilofti, góðri innkeyrsluhurð (með gönguhurð) og mörgum gluggum. Fasteignamat 2026 = 136.400.000 kr. 

Anddyri er með fataskápum. Flísar á gólfi. 
Snyrting er inn af anddyri. Salerni, handlaug. Flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi. 
Eldhús er lokað, rúmgott með fallegri viðarinnréttingu með góðu vinnu- og skápaplássi og góðum borðkrók. Vönduð eldhústæki frá Bosch, Siemens og Asko. Flísar á gólfi. 
Þvottahús og búr eru inn af eldhúsi. Ikea innrétting í þvottahúsi með pláss fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi. Útgengt er úr búri út á timburpall. 
Borðstofa er með tengingu við eldhús og stofu. Stór rennihurð og útgengt út á timburverönd.  
Stofa er björt og með stórum gluggum. 
Sólstofa er út frá stofu. Mjög gott rými (24 fm) með gólfhita og kamínu. Tveir útgangar út á flísalagða verönd eru úr sólstofunni, annar beint út að heita pottinum. 
Skáli er í hjarta hússins og tengir saman rými hússins. Flísar á gólfi. 
Herbergjagangur, parket á gólfi. 
Herbergi 1 er stórt með tveimur gluggum, var áður tvö minni herbergi og hæglega væri hægt að skipta því aftur upp í tvö minni. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er rúmgott (6,9 fm) með snyrtilegri eikarinnréttingu frá Brúnás með hvítum efri skápum og handlaug. Stór sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum. Upphengt salerni. Flísar í hólf og gólf. Opnanlegur gluggi. Handklæðaofn. Gólfhiti. 
Herbergi 2 er hjónaherbergi er rúmgott með góðum upprunalegum fataskápum með rennihurðum. Parket á gólfi. 
Herbergi 3 er gott forstofuherbergi, með skápum. Parket á gólfi. 
Bílskúr er snyrtilegur, 21,6 fm og með mörgum gluggum. Innkeyrsluhurð (með inngönguhurð). Heitt og kalt vatn. Flísar á gólfi. Góð hellulögð innkeyrsla er fyrir framan bílskúrinn með pláss fyrir 1-2 bíla. Snjóbræðsla er í innkeyrslunni og í hellulögðum göngustíg en ekki í útitröppum. 
Geymsla er á óskráðu millilofti yfir bílskúr. 

Lóðin er 588,3 fm og gróin með tveimur veröndum, góðri grasflöt og nokkrum háum trjám. Góð staðsetning innst í botnlanga. Kyrrlátt og rólegt umhverfi. 

Yfirlit yfir helstu framkvæmdir og endurbætur á liðnum árum að sögn eiganda:
Baðherbergi var endurnýjað 2012
Bílskúr flísalagður og milliloft smíðað 2012
Gestasnyrting, skáli og eldhús flísalagt 2012
Frárennslislagnir voru yfirfarnar 2012
Húsið var múrviðgert og málað 2019
Nýr pallur 2020/2021
Heitur pottur frá NormX 2021
Þak var yfirfarið 2022
Skipt var um glugga í öllu húsinu nema við inngangshurð þar sem þó var skipt um gler 2022 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Greniteigur 37
Bílskúr
Skoða eignina Greniteigur 37
Greniteigur 37
230 Reykjanesbær
172.6 m2
Raðhús
524
556 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 38
Skoða eignina Stefnisvogur 38
Stefnisvogur 38
104 Reykjavík
114.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 40
Skoða eignina Stefnisvogur 40
Stefnisvogur 40
104 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1120 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 40 - Íbúð 410
Stefnisvogur 40 - Íbúð 410
104 Reykjavík
95.1 m2
Fjölbýlishús
312
903 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin