Hraunhamar fasteignasala kynnir: Afar fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð 107,3 fm á 4. hæð í glæsilegu lyftuhúsi við Norðurbakka 21A Hafnarfirði. Íbúðin er mjög vel skipulögð, merkt bílastæði með rafhleðslustöð er í bílageymslu. Þvottaherbergi er innan íbúðar og sérgeymsla í kjallara. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Aukin lofthæð í íbúð og tvennar svalir. Glæsilegur sameiginlegur garður.
Eignin er laus við kaupsamning. Nánari lýsing:
Forstofa með góðum skáp.
Bjart opið alrými.
Falleg viðarinnrétting í
eldhúsi, tengi fyrir uppþvottavél. Eyja með háf yfir.
Stofa/borðstofa er opin við eldhúsið, og útgengt á
svalir til vesturs.
Hjónaherbergi er með rúmgóðum skáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi/vinnuherbergi með parket á gólfum, útgengt þaðan á
svalir í vestur.
Þvottaherberginu er góð innrétting, vaskur, flísar á gólfi.
Sérgeymsla er í kjallara í sameign.
Sérmerkt bílastæði með rafhleðslustöð á besta stað í bílakjallaranum (við innganginn inn í húsið)
þar er líka sameignlegt þvottastæði.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Húsið stendur á góðum stað þar sem gamla höfnin var, í göngufæri við miðbæinn, verslun og þjónustu. Nánari upplýsingar veita Helgi Jón Harðarson, sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is og Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali í s. 791-7500 eða vala@hraunhamar.is Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is