Fasteignaleitin
Skráð 20. sept. 2026

Hæringsstaðir

EinbýlishúsNorðurland/Dalvík-621
502.5 m2
8 Herb.
Verð
55.000.000 kr.
Fermetraverð
109.453 kr./m2
Fasteignamat
46.900.000 kr.
Brunabótamat
120.000.000 kr.
Byggt 1947
Pallur
Fasteignanúmer
2155828
Landnúmer
193025
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: *** FALLEG OG VEL STAÐSETT JÖRÐ Í SVARFAÐARDAL ***

Hæringsstaðir í Svarfaðardal – einbýlishús ásamt rúmgóðum útihúsum á 8.530 m² eignarlóð
Spennandi eign á fallegum og friðsælum stað í Svarfaðardal, um 17 km frá Dalvík. Eignin samanstendur af 202 m² einbýlishúsi ásamt 299,5 m² útihúsum sem skráð eru sem fjós og hlaða. Samtals er því um að ræða rúmlega 500 m² af húsnæði á 8.530 m² eignarlóð. Eignin þarfnast mikilla endurbóta en býður upp á ýmsa möguleika fyrir rétta aðila.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Nánari lýsing eignar
Íbúðarhús:
Íbúðarhúsið er steinsteypt, á tveimur hæðum og skráð samtals 202 m². Húsið er komið í lélegt ástand, þarfnast verulegra endurbóta og telst ekki íbúðarhæft í núverandi ástandi.
Efri hæð: Forstofa, gangur, eldhús, stofa, baðherbergi og fimm svefnherbergi.
Kjallari: Þvottahús, stofa, tvö herbergi og geymslur.
Sunnan við húsið er pallur með skjólgirðingu.

Útihús
Fjós/verkstæði:
Fjósið er skráð 176,7 m² og hefur verið innréttað sem verkstæði. Þar er góð vinnuaðstaða og stór innkeyrsluhurð.

Hlaða:
Sambyggð fjósinu er 122,8 m² hlaða. Gólf hlöðunnar eru ekki steypt og yfir hluta hennar er lokað geymslurými.
Lóð og staðsetning
Lóðin er 8.530 m² eignarlóð á einstaklega fallegum og friðsælum stað í Svarfaðardal. Umhverfið einkennist af mikilli náttúrufegurð og fjallasýn en jafnframt er aðeins um 17 km akstur til Dalvíkur.
Húsin þarfnast töluverðs viðhalds og endurbóta, en hér getur verið um spennandi tækifæri að ræða fyrir laghenta aðila sem sjá möguleikana í eigninni og staðsetningunni.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/10/201214.244.000 kr.9.500.000 kr.502.5 m218.905 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1951
176.7 m2
Fasteignanúmer
2155828
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
5.760.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
5.760.000 kr.
Brunabótamat
27.300.000 kr.
Byggt 1956
122.8 m2
Fasteignanúmer
2155828
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
1.540.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.540.000 kr.
Brunabótamat
11.750.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (5)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ystasel 27
Bílskúr
Heitur pottur
Tvær aukaíbúðir
Skoða eignina Ystasel 27
Ystasel 27
109 Reykjavík
334.5 m2
Einbýlishús
1248
628 þ.kr./m2
209.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarrás 9
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Kjarrás 9
Kjarrás 9
210 Garðabær
287.6 m2
Einbýlishús
725
Fasteignamat 183.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Aflakór 8
Bílskúr
Skoða eignina Aflakór 8
Aflakór 8
203 Kópavogur
294 m2
Einbýlishús
624
748 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Fornistekkur 10
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:23. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Fornistekkur 10
Fornistekkur 10
109 Reykjavík
220 m2
Einbýlishús
514
659 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin