Fasteignaleitin
Opið hús:11. okt. kl 15:00-15:30
Skráð 8. okt. 2026

Æsuborgir 12

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
234.5 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
164.900.000 kr.
Fermetraverð
703.198 kr./m2
Fasteignamat
150.850.000 kr.
Brunabótamat
86.000.000 kr.
Mynd af Heiðar Friðjónsson
Heiðar Friðjónsson
Löggildur Fasteignasali
Byggt 1996
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2225487
Landnúmer
175226
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Búið að skipta um járn og pappa
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Norður svalir
Lóð
50
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
NÝTT Í SÖLU, ÆSUBORGIR 12,  Borgarhverfi Grafarvogs, Heiðar Friðjónsson lögg.fast. og Valhöll fasteignasala kynnir fyrir fjölskyldufólk:
Stórglæsilegt, skemmtilega skipulagt og mikið endurnýjað 234,5 fm parhús á tveimur hæðum á frábærum stað við Æsuborgir 12 í Grafarvogi Reykjavíkur. Húsið er með tveimur baðherbergjum, fjórum svefnherbergjum og mjög rúmgóðum stofum.  Garðurinn er gróinn með stórum sólpöllum og skjólgirðingum og með heitum potti, sórar útsýnissvalir til norðurs.  Húsið hefur fengið mikið viðhald á síðustu árum og virðist í nokkuð góðu ástandi.

ATH. opið hús er á eigninni sunnudaginn 11. október frá kl. 15.00 til 15.30, Heiðar verður á staðnum og sýnir áhugasömum, s.693-3356 heidar@valholl.is
 
Neðri hæð.
Gengið er inn á neðri hæð húsins í aflokað anddyri með góðum skápum, flísum á gólfi og rennihirð inn í húsið, þaðan er komið inn á flísalagðan gang, á neðri hæðinni eru tvö rúmgóð barnaherbergi, baðherbergi, sjónvarpsrými, þvottarhús og bílskúr. Barnaherbergin eru bæði rúmgóð með harðarketi á gólfi og endurnýjuðum skápum.  Baðherbergið er endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum, sturtu og innréttingu.  Sjónvarpsrýmið er með flísum á gólfi og í enda þess eru geymsla með tveimur rennihurðum. Af ganginum er gengið í gegnum flísalagt þvottarhús með innréttingu og þaðan inn í flísalagðan 30,1 fm bílskúr. Bílskúrshurðin er nýleg er með inngönguhurð. Í öllum rýmum nema þvottarhúsi og bílskúr er gólfhiti.  Í bakrýmunum þ.e sjónvarpsrými og baðherbergi er innblársturs og útsogskerfi.

Efri hæð.
Gengið upp rúmgóðan stiga, á stiganum er teppi og glerhandrið, sem var endurnýjað fyrir nokkrum árum, óbein næturlýsing er í stiga.  Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi, stofur, eldhús og baðherbergi, þaðan er gengið beint út í suðurgarð sem er með stórum sólpalli og skjólgirðingum, dekkið á pallinum var endurnýjað í fyrra. Stofurnar eru mjög rúmgóðar vínilparketi á gólfi, gólfsíðir gluggar eru norðan megin og þaðan gengið út á stórar svalir sem eru með uppstóluðum flísum og frábæru útsýni út á sundinn, yfir í Geldinganes og út á Esju, Snæfelsjökul og víðar. 
Eldhúsið er endurnýjað með eyju og granít á borðum. Tækin eru öll nýleg, ofn, helluborð með gufugleypi í, innbyggð uppþvottarvél. Falleg hvít innrétting og er útgengi til austurs úr eldhúsi út á pallinn. Stofurnar eru mjög rúmgóðar með góðri lofthæð og hvítum viðarþiljum í lofti.  Á stofunni er tvöföld hurð út á svalirnar sem eru um 25 fm, með 60*60 flísum sem eru uppstólaðar, þar undir er dúkur enda eru svalirnar yfir hluta af bílskúrnum.  Úr borðstofu er tvöföld hurð út á pallinn, báðar hurðirnar eru nýlega endurnýjaðar,  Hjónaherbergið er við enda gangsins þangað inn er rennihurð og innaf henni er endurnýjað fataherbergi.  Barnaherbergi er þar við hliðina með skáp. Baðherbergi efri hæðar er eina rýmið sem ekki hefur verið endurnýjað, en með flísum á gólfi og veggjum, baðkari, innréttingu og glugga. Á efri hæðinni er gólfhiti en í herbergjum og borðstofu er líka ofnakerfi.  Megnið af húsinu hefur verið endurnýjað, m.a allar hurðir, innréttingar, gólfhiti, eldhús og er nýlegt vínilparket á öllum gólfum efri hæðar. Varmaskiptar eru á heita vatninu, bæði fyrir neysluvatnið og ofnakerfið.

Húsið er staðsteypt með marmarasalla, þakið er valmaþak og nær það allstaðar vel út fyrir húsið. Skipt var um pappa og þakjárn fyrir ca. fimm árum og þakkanturinn endurnýjaður.  Lóðin er fallega frágenginn með 3-4 bílastæðum fyrir framan hús með snjóbræðslu undir og pallurinn sem snýr í suður er með endurnýjuðu dekki og skjólgirðingum, hitaveitu potti og góðum garðskúr sem er einangraður með rafmagni.

Þetta er sannkallað fjölskylduhús í götu þar sem einungis eru 8-parhús, úr húsinu er frábært útsýni til norðurs og opið svæði til suðurs, örstutt er í Borgaskóla og leikskólann Hulduheima, eins er stutt í verslunarmiðstöðina í Spönginni þar sem er m.a bókasafn, heilsugæsla, Hagkaup, Bónus, vínbúð,  auk fjölda verslanna og matsölustaða.

Þetta er draumastaður fyrir fjölskyldufólk að búa á.

Allar frekari uppl. um húsið veitir Heiðari Friðjónsson Lögg. fasteignasali í s.693-3356, heidar@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb 101
Bílastæði
Opið hús:10. okt. kl 11:30-12:00
Jöfursbás 5B - íb 101
112 Reykjavík
106,8 m2
Fjölbýlishús
322
842 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurás 4
Skoða eignina Víkurás 4
Víkurás 4
110 Reykjavík
58 m2
Fjölbýlishús
211
909 þ.kr./m2
52.700.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0420
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
laugaborg 420 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0420
Laugaborg 0420
105 Reykjavík
112,1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Screenshot 2026-07-17 at 16.18.54.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
152,8 m2
Fjölbýlishús
524
717 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin