Miklaborg kynnir vel skipulagða og bjarta 53,4 fm, 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð.
Um er að ræða 64 glæsilegar nýjar íbúðir við Borgartún 24. Fullbúnar 2-4ra herbergja íbúðir með geymslum í kjallara sem eru í mismunandi stærðum. Íbúðir afhendast með vönduðum innréttingum frá Nobila (sölu- og þjónustuaðili: GKS), innbyggðum tækjum og gólfefnum.
Sameiginlegur þakgarður á 4. 6. og 7. hæðinni. Einstök staðsetning í hjarta borgarinnar nærri helstu atvinnusvæðum og útivistarmöguleikum.
Eignir eru er í útleigu með hagkvæmum leigusamningi og hægt er að yfirtaka samning sem gildir úr árið 2027 með 295.000 kr. leigu á mánuði vísitölubundið.
Íbúð 310 er skráð 53,4 fm. Íbúðin skiptist í forstofu með fataskáp, eldhús og stofu í alrými þar sem útgengt er út á svalir sem snúa til vesturs, svefnherbergi með fataskáp og baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni 7,7 fm. Íbúð án stæðis í bílageymslu.
Íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum; Baðherbergi og þvottahús með flísalögðum gólfum og baðherbergi eru með flísalögðum veggjum upp að lofti á a.m.k tvo vegu. Harðparket er á öðrum gólfflötum ásamt hvítum gólflistum. Í lyftuforrýmum að innan eru veggir sandspartlaðir og málaðir. Í stigahúsum verða veggir spartlaðir og málaðir. Veggir og loft í bílageymslu verða grófviðgerðir og rykbundnir með glæru efni. Gólf í geymslum, geymslugangi, hjóla- og vagnageymslu verða lökkuð. Lagnir verða sjáanlegar í loftum í geymslum. Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu.
Nánari upplýsingar veita:
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 65 | 58,9 | ||
105 | 74.3 | 61,9 | ||
105 | 57.3 | 62,9 | ||
105 | 61.9 | 61,9 | ||
105 | 60.8 | 59,9 |