Fasteignaleitin
Skráð 28. ágúst 2026

Mánatún 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
138.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
136.900.000 kr.
Fermetraverð
989.162 kr./m2
Fasteignamat
109.750.000 kr.
Brunabótamat
79.940.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2014
2. hæð af 7
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2316477
Landnúmer
208475
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Mánatún 7 - Glæsileg íbúðir með tvennum svölum og bílastæði í bílakjallara - Eignin er eingöngu sýnd í einkasýningu (heimir@fastlind.is)

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og vel staðsetta endaíbúð á 2. hæð (einungis tvær íbúðir á hæðinni) með tvennum svölum í afar vönduðu og nýlegu fjölbýlishúsi við Mánatún í Reykjavík. Íbúðin er alls 138,4 fm. með sérmerktu bílastæði í bílakjallara. 

Stórt alrými íbúðarinnar skiptist í setustofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhús. Gluggar til suðurs og norðurs með útgengi á svalir beggja vegna. Eldhús með stórri eyju og góðu vinnuplássi. Þvottaherbergi er mjög vel staðsett inn af eldhúsi. Bæði svefnherbegin eru stór með góðu skápaplássi.

Íbúðin er virkilega falleg með vönduðum innréttingum og eldhústækjum. Vandað viðarparket á gólfum og fallegar sérsniðnar gardínur. Rúmgóð 8,7 fermetra geymsla er staðsett í kjallara. Mynddyrasími er í íbúð ásamt loftræstikerfi. Sameign er öll hin snyrtilegasta með lyklalausu aðgengi á sameignarhurðum. 


Mánatún 7 er virkilega vel staðsett í hjarta höfuðborgarinnar. Tveir inngangar eru inn í húsið (sunnan og norðan megin). Gangstétt með snjóbræðslu og næg bílastæði við húsið. Á sameiginlegri lóð er leiksvæði með leiktækjum, setbekkjum og gróðurkerum. Stutt er í alla þjónustu við Borgartún og Nóatún, afþreyingu og iðandi atvinnulífið.  Laugardalurinn með allri sinni útivist og fallegum gönguleiðum í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð, með viðarparketi og góðu skápaplássi.
Eldhús: Með viðarparketi á gólfi og fallegri eikar (hvítir efri skápar) eldhúsinnréttingu með stórri eyju. Gorenje bakaraofn, Gorenje helluborð, Gorenje innb. uppþvottavél og stál háfur. Innfelld lýsing í lofti og gluggi til suðurs.
Stofa: Er stór með viðarparketi á gólfi og góðum gluggum til suðurs og norðurs. Útgengi á svalir bæði til suðurs (inn í bakgarð hússins) og norðurs. Stofa rúmar vel setustofu, borðstofu og sjónvarpsstofu.
Svalir I: Eru rúmgóðar með glerhandriði og snúa til suðurs inn í skjólgóðan bakgarð hússins.
Svalir II: Snúa til norðurs.
Hjónaherbergi: Er stórt með viðarparketi á gólfi, góðum skápum og gluggm til austurs og suðurs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott með viðarparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni og handklæðaofn. Falleg innrétting við vask, góðir skápar og opnanlegur gluggi.
Þvottaherbergi: Er vel staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi, tenglar fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og þvottasnúrur í lofti.

Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði (nr. E099) sem er vel staðsett fylgir íbúðinni í lokuðum kjallara. Mjög snyrtilegur bílakjallari þar sem búið er að tengja töflur að stæðum svo hægt sé að tengja rafhleðslustöð við hvert og eitt stæði. 
Geymsla: Er 8,7 fermetrar að stærð. Staðsett á jarðhæð á geymslugangi.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í sameign hússins.

Húsið og frágangur:
Húsið er hannað af Kanon arkitektum, með nútímalegu skipulagi og vönduðum frágangi. Efla sá um verkfræðihönnun og Lumex um lýsingarhönnun. Timbur/álgluggar eru frá Gluggasmiðjunni. Innréttingar eru sérsmíðaðar með ljúflokunarbúnaði. Skápar eru í anddyri, hjónaherbergi og barnaherbergi. Innréttingar eru í eikarspóni eða sprautulökkuðum flötum. Á baðherbergi eru flísar upp í loft, glerskilrúm í sturtu og innbyggt upphengt salerni.


Nánari upplýsingar veitir:
Heimir F. Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða tölvupóstinum heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/04/201653.000.000 kr.49.900.000 kr.138.4 m2360.549 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2015
Fasteignanúmer
2316477
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
E0
Númer eignar
99
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.290.000 kr.

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg (502)
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
Skoða eignina Laugaborg (502)
Laugaborg (502)
105 Reykjavík
116.4 m2
Fjölbýlishús
312
1073 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (502)
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
L502.png
Skoða eignina Laugaborg (502)
Laugaborg (502)
105 Reykjavík
116.4 m2
Fjölbýlishús
312
1073 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (504)
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
Skoða eignina Laugaborg (504)
Laugaborg (504)
105 Reykjavík
141.5 m2
Fjölbýlishús
423
1307 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (504)
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 13:00-13:30
L504.png
Skoða eignina Laugaborg (504)
Laugaborg (504)
105 Reykjavík
141.5 m2
Fjölbýlishús
423
1307 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin