Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

Sigtún 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
91.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
863.239 kr./m2
Brunabótamat
44.950.000 kr.
Byggt 1948
Jarðhæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20192871
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali s. 777-2882 kynna bjarta og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í snyrtilegu fjórbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík.
Eignin er skráð 91,4 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar eru allir fermetrar innan íbúðarinnar og skipulag gott.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum þar með talið er nýtt eldhús, gólfefni og gólfhiti í eldhúsi og forstofu, baðherbergi endurnýjað og skipt um glugga í íbúð. Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald í gegnum árin m.a. verið endurnýjað þak, þakkantur, ytra byrði endursteinað ofl. Frábær staðsetning í jaðri Laugardalsins, stutt er í skóla og leikskóla, Laugardalslaugina, líkamsrækt og öflugt barna- og unglingastarf Þróttar.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fatahengi, flísum á gólfi og gólfhita.
Stofa björt og rúmgóð með vínylparketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað árið 2024, þar er mikið hirslupláss, tækjaskápur með rafmagni, innbyggð uppþvottavél og rúmgóður borðkrókur, á gólfi er vínilparket og gólfhiti. 
Svefnherbergisálma er aðgreind með rúmgóðum gangi/holi með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Hjónaherbergi rúmgott með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Svefnherbergi með vínylparketi á gólfi.
Baðherbergi er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi.
Geymsla er innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús er í sameign hússins á hæð íbúðar.
Endurbætur innan íbúðar:
  • 2025 Skipt um glugga íbúðarinnar
  • 2024 Skipt um gólfefni: flísar á forstofu og baðherbergi, vínylparket á öðrum rýmum. Ný eldhúsinnrétting, nýir skápar í holi og hjónaherbergi, og gólfhiti lagður í forstofu og eldhús.
Viðhald á húsinu í gegnum árin:
  • 2023 – Vatns- og frárennslislagnir yfirfarnar (endurnýjaðar 2005).
  • 2022 – Þak hússins endurnýjað
  • 2017 – Húsið tekið í gegn að utan með steypuviðgerð og endursteiningu, og þakkantur steyptur upp á nýtt. Stigagangur teppalagður og málaður.
  • 2014 – Skólp og dren endurnýjað og garðurinn tekinn í gegn.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 11-13
Skipholt 11-13 nýtt.jpg
Skoða eignina Skipholt 11-13
Skipholt 11-13
105 Reykjavík
81,7 m2
Fjölbýlishús
211
856 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósvallagata 30
Kjallaraíbúð
Ljósvallagata 30
101 Reykjavík
74,4 m2
Fjölbýlishús
312
819 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 45
Skoða eignina Hringbraut 45
Hringbraut 45
101 Reykjavík
91,5 m2
Fjölbýlishús
412
716 þ.kr./m2
65.500.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 12
Skoða eignina Ljósheimar 12
Ljósheimar 12
104 Reykjavík
99,8 m2
Fjölbýlishús
413
740 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin