Nes fasteignasala kynnir eignina:
Þórdísarbyggð 46-49, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða 14,7 ha eignarland sem samanstendur af 4 samliggandi sumhúsalóðum, Þórdísarbyggð 46- 49, ásamt tilheyrandi mannvirkjum. Lóðirnar eru úr landi jarðarinnar Stangarholts við Langá á Mýrum. Lóðirnar eru samliggjandi og afgirtar með góðum girðingum. Lóðirnar eru samnýttar, en hver með sitt fastanúmer og allar í eigu sama aðila.
Nánari lýsing:
Landið er slétt og vel gróið. Hluti þess er gömul tún. Lóðirnar liggja skammt frá Borgarnesi og er ekið frá þjóðvegi 1 um Snæfellsnesveg og síðan upp með Langá. Lækur rennur um landið og stór rotþró er innan svæðisins sem nýst getur fyrir fleiri hús. Rafmagn og vatn er komið í hús.
Landið sem er allst 14,7 ha að stærð samanstendur af lóðunum sem merktar eru F2335451, F2335452, F2321816 og F2335453.
Stærðir einstakra lóða eru; tvær lóðir eru 2,7 ha. hver, ein lóð er 3,0 ha. og ein er 5,4 ha. skv. skráningu HMS.
Byggingar.
Á landinu er hesthús úr timbri 45,9 fm að stærð með geymslulofti, nú nýtt sem geymsla.
Nýleg bogasskemma frá Merkúr, 30 fm að stærð sem stendur á steyptum undirstöðum, einangrað með möl í gólfi.
Gámahús, timburklætt að utanverðu með rafmagni, w.c., sturtu og heitu og köldu vatni. Sólpallur úr timbri er við húsin.
Bogaskemma og gámahús eru ekki skráð í fasteignaskrá og því utan skráðra fermetra.
Hér er ákjósanlegt eign fyrir hestafólk, bæði hrossabeit og vatn í haga. Mjög góðar reiðleiðir í fallegu umhverfi hvort sem farið er meðfram Langá eða til suðurs í átt að Galtarholti. Þá hentar svæði starfsmannafélögum þar sem auðveldlega má byggja nokkra bústaði á sama svæði þar sem lóðirnar eru stórar og samliggjandi. Stutt í Borgarnes en þar er alla þjónustu að finna.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.