Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 4ra herbergja 144,4 fm endaíbúð á efri hæð á frábærum stað við Grænulaut 10 í Reykjanesbæ.
Íbúðin er 144,4fm þar af 5,3fm sérgeymsla. Stórar lokaðar svalir með flottu útsýni til suðurs og vestur. Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgott eldhús með eyju, stofu og borðstofu.
Forstofa hefur flísar á gólfi og þar er skápur.
Gangur er parketlagður.
Stofa er parketlögð og hurð er út á stórar lokaðar svalir sem snúa í suð-vestur.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er góð innrétting og eldunareyja ásamt góðum tækjum, ofn, helluborð og háfur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni.
Í þvottahúsi eru flísar á gólfi. Þar er góð hvít innrétting með skolvaski og góðu skápaplássi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll mjög rúmgóð. Parket á gólfi og skápar í öllum herbergjum.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum að hluta. Þar er hvít innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og rúmgóð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.
Geymsla er 5,3 fm í sameign á neðri hæð.
*Hiti er í innkeyrslu og í stétt við inngang.
*Þvottahús er í íbúðinni.
*Sér merkt bílastæði með hleðslustöð.
*Göngufæri frá Holtaskóla, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sundmiðstöð, íþróttahúsi, Reykjaneshöll, fimleikahúsi og verslunarkjarna.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs.
s. 863-4495 / 420-4000
dori@studlaberg.is