** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laust strax - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Bjart og vel skipulagt 207,9 m2 raðhús á pöllum með innbyggðum bílskúr við Fannafold 136 í Grafarvogi. Eignin er skráð 207,9 m2, þar af íbúðarrými 181,4 og bílskúr 26,5. Mikil lofthæð og fallegur garður með timburverönd til vesturs. Steypt bílaplan með snjóbræðslu. Húsið er nýmálað að utan. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, vinnuherbergi, eldhús með borðkrók, stofu, borðstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, forstofu, geymslu og bílskúr. Vinsæl staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Stutt í skóla, sundlaug, verslun og alla helstu þjónustu.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxEignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.Skv. upplýsingum frá seljanda var: Þak var endurnýjað, settir nýir þakgluggar og nýtt parket á stofu og borðstofu fyrir um 1 ári síðan. Planið var tekið í gegn og steypt 2024 og þá voru inntakslagnir fyrir neysluvatn endurnýjaðar og snjóbræðslu komið fyrir. Gler á framhlið hússins endurnýjað og útidyrahurð endurnýjuð fyrir um 5 árum síðan. Bílskúrshurð var endurnýjuð fyrir um 10 árum síðan. Húsið er nýmálað að utan.Nánari lýsing:
Neðsti pallur:Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi, salerni og handlaug. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Hol er með flísum á gólfi.
Eldhús er inn af holi, með flísum á gólfi, U-laga innréttingu og góðum borðkrók. Bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Flísar milli efri og neðri skápa. Útgengt á stétt framan við hús úr eldhúsi.
Þvottahús er inn af holi með vinnuborði og vaski.
Geymsla er inn af þvottahúsi með hillum.
Bílskúr er með hillum, rennandi vatni, rafdrifnum bílskúrshurðaopnara og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Innangengt er í bílskúrinn úr íbúðarrýminu um þvottahús.
Milli pallur:Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og flísum í kringum arininn. Fallegur arinn og mikil lofthæð sem gerir rýmið bjart og skemmtilegt. Útgengt er út á timburverönd og bakgarð í vesturátt.
Efsti pallur:Svefnherbergisgangur er með kork á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með málað gólf.
Svefnherbergi nr. 2 er með kork á gólfi, fataskáp og stiga upp á milliloft sem hefur verið nýtt sem leiksvæði eða svefnaðstaða. Mikil lofthæð.
Svefnherbergi nr. 3 er með kork á gólfi, fataskáp og stiga upp á milliloft sem hefur verið nýtt sem leiksvæði eða svefnaðstaða.. Mikil lofthæð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu, handlaug, salerni, sturtu og baðkari. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Vinnuherbergi er með kork á gólfi, fataskáp og tveimur þakgluggum.
Verð kr. 139.900.000,-