NEÐRI SÉRHÆÐ AÐ TJARNARBRÚ 20 HÖFN Í HORNAFIRÐI.
Valhöll fasteignasala Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason. Lg.fs. Sími: 895-2115 - snorri@valholl.is, kynna til sölu rúmgóða 2ja herb. íbúð á fyrstu hæð í þríbýlishúsi. Íbúðin er 74,4 m² ásamt 28 m² bílskúr, samtals 102,4 m². Sér afnotaréttur framan við húsið og við aðaldyr sem fylgir þessari íbúð.Fasteignamat næsta árs verður kr. 39.350.000 kr.FORSTOFA, flísar á gólfi.
BAÐHERBERGI, flísar á gólfi, hvít hreinlætistæki, baðkar m/sturtu, tengt fyrir þvottavél.
STOFA OG ELDHÚS, parket á gólfi, góð innrétting í eldhúsi, AEG keramik helluborð, ofn og vifta.
SVEFNHERBERGI, parket á gólfi, fataskápur.
Lóð: Lóðin er sameiginlega 896 m² leigulóð en skilgreindir eru sér afnotaréttur skv eignaskiptasamningi.
Viðhald skv upplýsingum frá seljanda.
2026: Inntak hitaveitu og lagnagrind verður endurnýjuð
2024: Endurnýjuð gólfefni í miðrými.
2022: Útveggir íbúðar voru málaðir að utan
2015: Skipt hluta af gluggum í eldhúsi, stofu og anddyri.
Hluti af útveggjum hússins hafa verið einanagraðir og múraðir.
Bílskúrinn er lélegur og þarfnast endurbóta.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.