Skógarbraut í Reykjanesbæ er íbúðarhúsnæði á þremur hæðum, 8 íbúðir eru í hverjum stigagangi og hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum árin. Íbúðirnar eru 2ja-3ja herbergja og eru allar á bilinu 90-95fm. Nýlegt gólefni er á allri íbúðinni. Eldhúsinnrétting hefur verið endurnýjuð. Baðherbergi með nýlegri innréttingu og nýlega flísalagt. Neysluvatnslagnir og hreinlætistæki endurnýjuð. Húsið var sprunuviðgert og málað árið 2018 sem og þak. Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar frá plötu.
Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu 8 íbúða fjölbýlishúsi við Skógarbraut í Reykjanesbæ. Eignin skiptist í stofu, eldhús, hjónaherbergi, herbergi, baðherbergi, gang, geymsla og þvottahús eru í sameign.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 94,4 fm. og þar af er geymlsa 3,0 fm.
Nánari lýsing:
Anddyri með harðparketi á gólfi.
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Eldhús með nýrri fallegri innréttingu með helluborði, ofni, háf, innbyggðum ísskáp, innbyggð uppþvottavél og parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, handklæðaofn, upphengdu salerni, speglaskáp með led lýsingu og flísum á gólfi og hluta veggja. Hreinlætistæki voru endurnýjuð árið 2018 og er frá Byko.
Geymsla er á hæð íbúðar.
Þvottahús er í sameign á hæð íbúðar.
Vagna- og hjólageymsla er á hæð íbúðar.
Blokkin var sprunguviðgerð og máluð að utan árið 2018
Þak var málað árið 2018
Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru nýleg gólfefni.
Nýlega endurnýjað hitaveitu ofna og lagnir þar sem þess þurfti, allar ofnlagnir voru úr eir og eru þær heillegar.
Íbúðirnar eru á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum og stutt er í alla þjónustu og skóla. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is