Fasteignaleitin
Opið hús:30. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 22. apríl 2026

Langholtsvegur 167

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
166.7 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
134.900.000 kr.
Fermetraverð
809.238 kr./m2
Fasteignamat
124.850.000 kr.
Brunabótamat
82.550.000 kr.
Mynd af Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2023461
Landnúmer
105691
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Skipt um lagnir á baði og eldhúsi 2024
Raflagnir
gamlar
Frárennslislagnir
Lagnir fóðraðar, nýjar lagnir lagðar út í brunn árið 2021
Gluggar / Gler
Búið að skipta um 4 glugga á austurhlið 2016, skipta þarf um tvo glugga á vesturhlið(gamlir), aðrir gamlir
Þak
upprunalegt, kominn tími á endurnýjun(sér á þakjárni)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já, norð-austur svalir
Upphitun
ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
* Eigendur vilja koma á framfæri að þakið er upprunalegt/gamalt, og er komið á tíma. Ekki er starfrækt húsfélag í húsinu en hingað til hefur hver eigandi sinnt sínum eignarhluta á sinn kostnað, þ.e., þak, ytrabirgði, gluggar og gler.
Fasteignasalan TORG og Guðný Ösp lgf., s. 665-8909 kynnir sex herbergja parhús á tveimur hæðum við Langholtsveg 167
Eignin er samtals skráð á fasteignayfirliti frá HMS 166.7 fm og var teiknuð af Kjartani Sveinssyni árið 1966.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgf., í síma 665-8909, tölvupóstur gudny@fstorg.is. 

Umrædd eign er vel staðsett ofarlega á Langholtsveginum, með barnvænum og rúmgóðum bakgarði, með skjólveggjum og þremur pöllum. Garðurinn nýtist einstaklega vel og býður upp á mikla notkunarmöguleika. Skipulag eignarinnar er mjög gott, fimm svefnherbergi á efri hæð ásamt baðherbergi. Á neðri hæð er gestasalerni inn af forstofu, rúmgóð og björt stofa- og borðstofa, en frá borðstofu er útgengt út á rúmgóðan pall í bakgarðinum sem snýr suð-austur.  Eldhús við hlið stofu og þvottahús inn af því, geymsla er staðsett í kjallara með sér inngangi á vestur hlið hússins. Um er að ræða vel viðhaldna fjölskyldu eign teiknaða af Kjartani Sveinssyni á góðum stað í póstnúmeri 104, sem vert er að kynna sér vel. 

Nánari lýsing: 
1. hæð

Forstofa: flísar á gólfi, fatahengi.
Gestasalerni: flísar á gólfi, salerni og handlaug.
Stigagangur: flísar á gólfi.
Eldhús: parket á gólfi, ljós eldhúsinnrétting með nýlegri borðplötu.
Þvottahús: með gólfdúk, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, sér útgangur frá þvottahúsi á norður hlið hússins.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi, stofa er björt og opin með stórum gluggum sem snúa í átt að bakgarðinum, með beinu útgengi út á pall. Útsýni í átt að Esju og Úlfarsfelli.
Geymsla: staðsett í kjallara með sér útgang á norður hlið hússins.
2. hæð 
Stigagangur: flísar á gólfi.
Hjónaherbergi I: parket á gólfi og fataskápar.
Herbergi II: parket á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í norð-austur.
Herbergi III: parket á gólfi.
Herbergi IV: parket á gólfi.
Herbergi VI: parket á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi, baðker með sturtuaðstöðu, salerni, handlaug og baðinnrétting. Geymsla er staðsett inn af baðherbergi.  

Aðkoma að aðalinngang eignarinnar er góð, en mögulegt er að leggja við götuna við hlið gangstéttar nærri útidyrahurð.
Eignin er mjög vel staðsett, en það er göngufæri í Vogaskóla og eins mjög stutt í Menntaskólann við Sund. Margar fallegar gönguleiðir í Elliðaárdal, úrval af verslunum og þjónustu í Skeifunni og þá er stutt í alla íþróttastarfsemi hjá Þrótti og Ármanni svo eitthvað sé nefnt. 

Allar upplýsingar og fyrirspurnir veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað á eignartíma þeirra: 
***Þak er upprunalegt og fer að þarfnast endurnýjunar.***

Árið 2025: nýtt gólfefni(harðparket), lagt á stofu, eldhús og efri hæð eignarinnar. 
Árið 2024: Skipt um vatnslagnir á baðherbergi og eldhúsi árið 2024.
Árið 2023 og 2024: grindverk smíðuð og sett upp í garðinum.
Árið 2022: Jarðvegsskipti í garðinum, tyrft upp á nýtt og tvær stórar Aspir fjarlægðar.
Árið 2022: Skipt um tvær útidyrahurðar á norðurhlið hússins í kjallara og þvottahúsi.
Árið 2021: Frárennsli fóðrað út í brunn.
Árið 2020: húsið múrviðgert að utan.
Árið 2016: skipt um fjóra glugga á austurhlið hússins.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/02/201646.800.000 kr.48.500.000 kr.166.7 m2290.941 kr.
03/11/200935.250.000 kr.40.000.000 kr.166.7 m2239.952 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraungata 7 (202)
Bílastæði
Hraungata 7 (202)
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 313
Opið hús:26. apríl kl 14:00-14:30
laugarborg 313.jpg
Skoða eignina Laugaborg 313
Laugaborg 313
105 Reykjavík
118 m2
Fjölbýlishús
312
1016 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0420
Opið hús:26. apríl kl 14:00-14:30
laugaborg 420 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0420
Laugaborg 0420
105 Reykjavík
112.1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0328
Opið hús:26. apríl kl 14:00-14:30
laugaborg 328 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0328
Laugaborg 0328
105 Reykjavík
110 m2
Fjölbýlishús
312
999 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin