Fasteignaleitin
Skráð 17. júlí 2026

Þangbakki 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
71.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
60.900.000 kr.
Fermetraverð
854.137 kr./m2
Brunabótamat
38.550.000 kr.
Byggt 1979
5. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20469582
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Esja fasteignastala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna mikið endurnýjaða 2ja herbergja eign á 5. hæð í lyftuhúsi með frábæru útsýni í einkasölu.
Þangbakki 10, íbúð merkt 0504 og 5D er skráð 71,3 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 64,1 fm. og geymsla í sameign 7,2 fm. Íbúðin er í lyftuhúsi með frábæru útsýni til norð-vesturs yfir Esjuna, sundin og borgina.
Nánari lýsing eignar: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á suðurhlið hússins. Þar er góð aðkoma með stóru andyri, nýlegu myndavéla -dyrasímakerfi og póstkössum. Íbúðin er á 5. hæð með útsýni til norðurs og vesturs.
Komið er inn í opið og bjart alrými en í forstofunni er fataskápur. Rúmgóð stofa sem rúmar vel bæði setusfotu og borðstofu er í þessu opna og bjarta rými með stórum gluggum mót norð-vestri og frábæru útsýni.
Eldhúsið er með nýrri og fallegri innréttingu frá IKEA, þar er gott vinnupláss og nóg skápa/skúffu pláss, tengt hefur veirð fyrir þvottavél. Borðkrókur við glugga í eldhúsinu en þaðan er gengið út á stórar svalir með frábæru útsýni.
Baðherbergi er snyrtilegt og vel skipulagt, það er mikið endurnýjað, flísalagt með góðum sturtuklefa með glervegg, innréttingu undir vaski og upphengdu salerni ásamt handklæðaofni.
Svefnherbergið er sérlega rúmgott með góðum fataskáp meðfram heilum vegg.
Gólfefni er ný harðparket frá Birgisson og flísar á baðherbergi. Skipta var um rofa og tengla vor 2026.
Íbúðin er afar björt og falleg með nýju gólfefni og eldhúsinnréttingu.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir 5 íbúðir sem eru á hæðinni, það er snyrtileg og góð aðstaða með þvottavél og snúrum.
Í sameign er sér geymsla íbúðarinn sem er 7,2 fm. auk þess sem snyrtileg vagna- og hjólageymsla er aðgengileg á vinstri hönd við inngang í húsið. 
Frábær staðsetning í Mjóddinni við alla þjónustu, verslun og heilsugæslu og góða tengingu við samgöngukerfi borgarinnar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Æsufell 2
Skoða eignina Æsufell 2
Æsufell 2
111 Reykjavík
92 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur forsíða jpg.jpg
Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur 9E
260 Reykjanesbær
88.4 m2
Fjölbýlishús
413
678 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Frostafold 26
Bílastæði
Skoða eignina Frostafold 26
Frostafold 26
112 Reykjavík
56 m2
Fjölbýlishús
211
980 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Móavellir 2
Skoða eignina Móavellir 2
Móavellir 2
260 Reykjanesbær
83 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin