Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali og Hús fasteignasala kynna í einkasölu eignina Fífutjörn 1, 800 Selfoss.
Um er að ræða vel skipulagt 72 fm parhús með bílskúrsrétti. Húsið er steypt, klætt að utan með stení, hurðir og gluggar úr tré og bárujárn á þaki. Sólpallur með skjólgirðingu og kaldur geymsluskúr. Góð staðsetning þar sem stutt er í grunn- og leikskóla.
Forstofa er flísalögð með fatahengi, inn af forstofu er þvottahús/geymsla. Stofa og eldhús í opnu alrými. Útgengt út á sólpall úr stofu. Tvö svefnherbergi, hjónaherbergi með nýjum fataskáp. Baðherbergi var nýlega tekið í gegn. Flísar á gólfi, upphengt salerni, sturtuklefi og fín innrétting úr Ikea.
* Nýtt harðparket á gólfum í alrými og herbergjum *
* Nýjar flísar í forstofu+geymslu og inn á baðherbergi *
* Eldhúsinnrétting endurnýjuð að hluta, neðri skápar, ofn, helluborð og vaskur allt nýtt ( efriskápar upprunalegir) *
* Nýjir sólbekkir *
* Baðherbergi endurnýjað *
Eignin Fífutjörn 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 222-9265, birt stærð 72.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.