Opið hús:05. mars kl 17:00-17:30
Skráð 1. mars 2026

Brekkubyggð 22

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
171.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
903.734 kr./m2
Fasteignamat
130.900.000 kr.
Brunabótamat
89.400.000 kr.
Mynd af Hafdís Rafnsdóttir
Hafdís Rafnsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1981
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2069492
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt
Raflagnir
endurnýjuð tafla
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
skipt hefur verið um gluggalista á N og S hlið eftir þörfum
Þak
endurnýjað járn ca 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
sprunga í einu nýju gleri í stofu, smá sprunga í spanhelluborði.
**Eignin verður ekki sýnd fyrr en í opnu húsi þann 5 mars kl 17.00-17.30**Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt og bjart raðhús með bílskúr á einni hæð á þessum eftirsótta stað í Garðabæ, Brekkubyggð 22. Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 171,4fm og þar af er bílskúr skráður 31,4 að auki er sólstofa með kamínu um 23fm sem er ekki inni í skráðum fermetrum og eignin því um 194fm að stærð. Fyrir um 3 árum var skipt um járn á þaki, 2025 var hús og gluggar málað að utan og eldhúsið uppgert ca 2005. Aðkoman að eigninni er falleg með hellulögðu bílaplani og garðurinn er gróinn og fallegur með timburveröndum og skjólveggjum. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fjórföldum fataskáp.
Þvottahús: Innaf forstofu er rúmgott og vel útbúið þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu sem er ca 7 ára gömul, vaski og opnanlegum glugga. Innaf þvottahúsinu er búr eða geymsla einnig með  innréttingu sem var sett upp fyrir ca 7 árum, flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri sérsmíðaðri eikarinnréttingu með góðu skápaplássi. Rúmgóður borðkrókur er við glugga og fallegt útsýni er frá eldhúsinu. Spanhelluborð með háf yfir og tengi er fyrir uppþvottavél. Flísar eru á gólfi og á milli efri og neðri skápa og tveir gluggar eru í eldhúsinu.
Stofa: Stofan er mjög rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Parket er á gólfi og stórir gluggar. Sjónvarpshol: Samliggjandi stofum er gott sjónvarpshol með útgengi út verönd.
Sólstofa: Inn af stofu er ca 23fm sólstofa sem er góð og falleg viðbót við húsið, flísar eru á gólfi og bæði gólfhiti og ofn. Kamína er í sólstofunni og útgengt út í garð um rennihurð. Nýlega var skipt var um hurð og glugga á Sólstofunni sem snýr að timburverönd. Einnig endurnýjuð timburgrind sem er undir Steni-klæðningu á sökkli fyrir Sólstofu. 
Baðherbergi: Baðherbergið er bæði með baðkari og sturtu. Ljós innrétting er á baðherberginu ásamt upphengdu salerni og opnanlegum glugga.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru 4, öll með parketi á gólfi og í hjónaherbergi eru rúmgóðir fataskápar og innbyggður fataskápur er í einu barnaherbergjanna.
Bílskúr: Bílskúrinn er skráður 31,4 fm. Tvær göngudyr eu á skúrnum, rafmagnshurðaopnari, heitt og kalt vatn og búið er að stúka af vinnuherbergi með glugga í skúrnum.
Garður og aðkoma: Garðurinn er mjög skjólgóður og fallegur með timburveröndum og í garði er timburskúr sem er tilvalinn undir t.d garðhúsgögn. Bílaplan og gangstéttir við húsið eru með hitaílögnum að hluta og aðkoman falleg.
Niðurlag: þetta er virkilega bjart, rúmgott og gott fjölskylduhús með bílskúr og 4 svefnherbergjum. Staðsetning eignarinnar er afar góð með fallegu útsýni á eftirsóknaverðum stað við Brekkubyggð í Garðabæ þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, íþróttasvæði auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1981
3.1 m2
Fasteignanúmer
2069492
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.300.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 1
Bílskúr
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
136.4 m2
Fjölbýlishús
322
1172 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkholt 59
Bílskúr
Skoða eignina Stekkholt 59
Stekkholt 59
210 Garðabær
215.8 m2
Raðhús
523
764 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Háhæð 7
Skoða eignina Háhæð 7
Háhæð 7
210 Garðabær
164.7 m2
Raðhús
613
908 þ.kr./m2
149.500.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 5 (302)
Bílskúr
Hraungata 5 (302)
210 Garðabær
168.8 m2
Fjölbýlishús
413
1000 þ.kr./m2
168.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin