Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Dalsbraut 3, íbúð 304, 260 Reykjanesbæ:Um er að ræða fallega 3ja herbergja íbúð með sérinngangi frá svalagangi á 3 og efstu hæð í nýlegu fjórbýlishúsi með lyftu (byggt 2019). Birt stærð eignar (304) samkvæmt fasteignaskrá HMS er 74,2 fm og þar af er íbúðarhluti 70 fm og geymsla 4,2 fm. Stórar 13,7 fermetra suðvestur svalir (möguleiki á gler svalarlokun) með fallegu útsýni. Geymsla 4,2 fermetrar fylgir í sameign á jarðhæð. Frábær staðsetning í göngufæri við nýjan leik- og grunnskóla.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri / gangur, stofu / borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í sameign.
Nánari lýsing:Anddyri / gangur: Með innfeldum hvítum fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, útgengi út á stórar suðvestur svalir, parket á gólfi.
Eldhús: Með hvítri innréttingu, borðkrókur, innbyggð uppþvottavél, ísskápur sem fylgir með, bakaraofn, keramik helluborði, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, hvítir fataskápar, parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi / Þvottaherbergi: Með hvítri innréttingu, sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi á vegg að hluta og inn í sturtu.
Geymsla: Sérgeymsla er í séreign á jarðhæð hússins, 4,2 fermetrar (númer 0115).
Húsið: Húsið er staðsteypt, klætt að utan með bárujárnsklæðningu. Gluggar eru úr áli að utan og timbri að innan, timbur/álgluggar. Svalagangar eru vindvarðir með samlímdu öryggisgleri. Í húsinu er 22 íbúðir.
Lóð: Á lóðinni eru 60 bílastæði sem öll eru í óskiptri sameign allra íbúða á Dalsbraut 3 og Dalsbraut 5. Þrjú af þessum bílastæðum eru sérstaklega ætluð fötluðum, eitt fyrir framan Dalsbraut 5 og tvö fyrir framan Dalsbraut 3. Baklóð er þökulögð.
Fasteignamat 2025: 56.650.000 milljónir.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.