Betri Stofan Fasteignasala kynnir 124,8fm, 4ja herbergja raðhús með sérinngangi á 2 hæðum ásamt 2 sérmerktum bílastæðum hlið við hlið í lokuðu bílastæðahúsi að Ásholti 28, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 201-0707 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Falleg og virkilega vel skipulögð eign sem er í blönduðum íbúðarkjarna með stórum og sólríkum aflokuðum, sameiginlegum opnum og sólríkum garði með leiktækjum og bekkjum. Eigninni fylgir hlutdeild í afar snyrtilegri sameign með stórri vagnageymslu, sameiginlegu þvottahúsi, rúmgóðu þurrkherbergi ofl. Sérgeymsla eignar er innaf bílastæðahúsi. Frábær staðsetning á rólegum stað í austara hluta miðbæjarins, Öll helsta verslun og þjónusta í göngufjarlægð ásamt miðbænum og útivistarparadísinni á Klambratúni svo eitthvað sé nefnt.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Eignin Ásholt 28 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-0707, birt stærð 124.8 fm, þar af er sérgeymsla í bílastæðahúsi merkt 030136, 6,2fm. Eigninni fylgir einnig 2 sérmerkt bílastæði sem eru hlið við hlið í lokuðu bílastæðahúsi.
Listi yfir framkvæmdir undanfarinna ára:
Innanhúss:
2018
- skipt um tæki á gestasnyrtingu
2020
- nýtt eldhús
2022
- nýjar innihurðir
2023
- nýjir ofnlokar
- nýtt baðherbergi með sérsmíðari baðherbergisinnréttingu með walkin sturtu
2025
- nýtt handrið á stiga og á stigaop á efri hæð. Stigi lokaður og geymslurými undir stiga. Þykkt ullarteppi sett á stiga.
Utanúss
Sameigninni hefur verið einstaklega vel sinnt af húsfélaginu jafnt og þétt.
Helstu atriði:
2008 var skipt um alla garðskála á húsinu
Dyrasímakerfi er nýtt- myndasími með valkvæddri símatenginu.
Ný innkeyrsluhurð með bluetooth tengingu fyrir síma og fjarstýringar á bílakjallara
Nýlega hefur verið lagt rafmagn bílastæði fyrir hleðslustöðvar (hægt að hafa tvær stöðvar)
2024 var nýtt þak sett á allt húsið auk þess sem gluggar voru yfirfarnir og gler skipt um þar sem þurfti.
Nýbúið er að mynda mikið af lögnum til að fylgjast með ástandi þeirra.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri: Flísar á gólfi og með innbyggðum fataskápum.
Gestasalerni: Innaf anddyri. Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni ásamt veggföstum vaski, spegli og skápum.
Stofa: Rúmgóð og björt. Góð tenging við eldhús. Útgengt út á vestur svalir.
Svalir: Vestur svalir útfrá stofu.
Eldhús: Endurnýjað árið 2020. Efri og neðri skápar. Gott skápa og vinnupláss.
Geymslurými: Undir tröppum, innaf stofu.
Efri hæð:
Hol: Tengir saman öll rými efri hæðar. Innbyggur fataskápur meðfram heilum vegg í holi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með nýlegum veggföstu fataskáp.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.
Svefnherberi III: Rúmgott barnaherbergi.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2023 með með sérsmíðari baðherbergisinnréttingu og walkin sturtu.
Geymsla: 6,2fm með upphengdum hillum. Innaf bílastæðahúsi.
Bílastæði: 2 sérmerkt bílastæði hlið við hlið í lokuðu bílastæðahúsi.
Garður: Afar fallegur og sólríkur aflokaður garður með leiktækjum og bekkjum.
Sameign: Eigninni fylgir mikil sameign, þar sem ber helst að telja húsvarðaríbúð, stór vagna- og hjólageymsla og þurrkherbergi. Afar snyrtileg og vel umhirrt.
Húsfélagið:
Húsfélagið í Ásholti er mjög öflugt. Í heildina eru 66 einingar í kjarnanum. Húsfélagið á íbúð í húsinu sem er í útleigu, og húsfélagið hefur líka talsverðar tekjur af því að leigja fjarskiptafélögum aðstöðu á efstu hæð í turnunum við húsið.
Það starfar húsvörður í kjarnanum sem sér um almenna umhirðu og sér um að sameignin sé snyrtileg. Í sameigninni eru stórar hjóla- og vagnageymslur, þvottavél með iðnaðarþvottavél og þurrkara, mjög þægileg sorp-flokkunaraðstaða innanhúss og lyfta úr bílakjallaranum upp á 2 hæð þar sem inngangurinn í raðhúsið er.
Falleg og vel skipulagt 4ja herbergja raðhús í fallegu og afar vel umhirrtum íbúðarkjarna á rólegum stað með alla helstu verslun og þjónustu í göngufjarlægð ásamt fjölbreytt úrval af kaffi- og veitingastöðum, afþreyingu, listasöfnum ofl.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.