Fasteignaleitin
Skráð 21. maí 2026

Eyjabakki 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
80.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
731.677 kr./m2
Brunabótamat
44.350.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20473402
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Eyjabakki 12, 109 Reykjavík – vel skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu þriggja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðin er skráð 80,5 m², þar af er sérgeymsla 7,7 m². Sameign er afar snyrtileg og vel rekin. Eignin státar af sólríkum suðursvölum sem snúa að sameiginlegum bakgarði með leiktækjum fyrir börn.

Skipulag:
Anddyri/hol, gangur, eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Parket á gólfi og skápur fyrir yfirhafnir.
Eldhús: Parket á gólfi. Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, bæði efri og neðri skápum. Flísar eru á vegg við borðplötu. Eldavél með ofni og vifta fyrir ofan. Góð aðstaða fyrir borðkrók.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi. Útgengi er út á sólríkar suðursvalir sem snúa að sameiginlegum bakgarði.
Baðherbergi: Uppgert baðherbergi með glugga. Flísar á gólfi og að hluta á veggjum við sturtu. „Walk-in“ sturta með sturtugleri. Innrétting neðan við handlaug, speglaskápur fyrir ofan og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp. Fallegt útsýni til sjávar og fjalla.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og innbyggður fataskápur. Fallegt útsýni til sjávar og fjalla.
Geymsla: Góð 7,7 m² sérgeymsla staðsett í sameign á jarðhæð.
Nánar um húsið og umhverfið: Afar snyrtileg og góð sameign. Sameiginlegt þvottahús er í húsinu með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins. Einnig er stórt þurrkherbergi og vel skipulögð hjóla- og vagnageymsla. Fjöldi sameiginlegra bílastæða er við húsið. Á baklóðinni er skjólgóður sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.
Eignin er staðsett í grónu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, þjónustu, útivistarsvæði og góðar samgöngur.


Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 63 - 2 bílastæði
Laugavegur 63 - 2 bílastæði
101 Reykjavík
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
706 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Opið hús:02. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19,íb. 602
Bílastæði
Hringhamar 19,íb. 602
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.702
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.702
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
917 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin