Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu: Andrésbrunnur 8, 113 Reykjavík, þriggja herbergja íbúð merkt 04 0301 ásamt stæði í bílageymslu merkt 04 B 03 á efstu hæð, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin skiptist í forstofu, sér þvottahús, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Birt stærð eignarinnar er 95,9 m², íbúð er skráð 87 m² ásamt geymslu 8,9 m². Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Laus fljótlega.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Þvottahús: Innan íbúðar og þar er tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð með viftu fyrir ofan og vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Opin og björt stofa/borðstofa, með útgengt út á svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Gott barnaherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Falleg baðinnrétting með nýlegum blöndurtækjum, baðkar, sturtuklefi og upphengt salerni.
Stæði í bílageymslu: Stæði í bílageymslu á jarðhæð hússins.
Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Lyfta er í húsinu.Eignin Andrésbrunnur 8 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 226-2953, birt stærð 95,9 m², íbúð 87 m² og geymsla 8,9 m².Björt og falleg þriggja herbergja íbúð á efstu hæð á vinsælum og barnvænum stað í Grafarholti. Stutt er í stofnbrautir og alla helstu verslun og þjónustu. Frábær útivistarsvæði í næsta nágrenni ásamt góðum göngu- og hjólastígum. Nánari upplýsingar veita:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861 6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.