Fasteignaleitin
Skráð 2. des. 2025
Deila eign
Deila

Þverbrekka 3

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
44.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
22.000.000 kr.
Fermetraverð
491.071 kr./m2
Fasteignamat
24.450.000 kr.
Brunabótamat
25.200.000 kr.
US
Unnur Svava Sverrisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2003
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2260552
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Rafmagnskynding
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Dekk vantar á pall við hlið hússins. Frágangur á parketlistum og gereftum kringum innihurðir, útihurði og glugga. Gluggar og svalahurð í alrými léleg. Þörf er á að yfirfara bíslag og klára frágang. Þakkantur ókláraður. Sturtuklefi lekur. Eftir að tengja affall af þvottavél við affall hússins. Bústaðurinn þarfnast viðhalds að innan og utan þar sem ýmislegt er óklárað, þá sérstaklega smávægilegur frágangur svo sem
parketlista, gerefti og annars almenns frágangs auk yfirferðar á bíslagi, gluggum og hurðum.
Allt fasteignasala kynnir í einkasölu Þverbrekku 3, 311 Borgarbyggð.
Virkilega vel skipulagður bústaður í landi Eskiholts 2 í Borgarfirði. Tvö svefnherbergi eru í eigninni, annað hefur tvíbreytt rúm og hitt koju, rúmgott svefnloft með tveimur rúmum, þar er manngengt að hluta. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu, björtu rými, þar er útgengt út á góðan sólpall. Baðherbergi með sturtu.
Góð geymsla/verkstæði er undir bíslagi. Góð aðkeyrsla og stór innkeyrsla. Birt stærð séreignar er 44,8 fm skv. Þjóðskrá Íslands en til viðbótar er umrædd geymsla, u.þ.b. 9 fm að stærð ásamt svefnlofti.

** Spennandi eign sem vert er að skoða **
** HÚSGÖGN FYLGJA **


Nánari lýsing:
Komið er inn í geymsluna/forstofuna, gengið áfram inn á gang og af honum er gengið upp stiga á svefnloftið. Á neðri hæðinni eru  tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og nýlegt eldhús. Gengið er úr stofu/eldhúsi út á sólpall sem er á þrjá vegu við húsið. Nýlegt parket er á alrými og svefnlofti. Önnur gólf neðri hæðar eru einnig með parketi. Nýlegir gluggar í svefnherbergjum.
Húsið stendur á 5.367 fm leigulóð. MÖGULEGT AÐ KAUPA LANDIÐ FYRIR 4.500.000 ef áhugi er fyrir eignarlandi.
Húsið er kynnt með rafmagni og hitakútur er fyrir neysluvatn.

Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir:
Unnur Svava Sverrisdóttir, löggiltur fasteignasali. unnur@allt.is eða í síma 8682555


Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Þinglýsingargjald er 2.700 kr fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/03/202319.200.000 kr.16.500.000 kr.44.8 m2368.303 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórdísarbyggð 53-54
Þórdísarbyggð 53-54
311 Borgarnes
28.7 m2
Sumarhús
211
763 þ.kr./m2
21.900.000 kr.
Skoða eignina Tannalækjarhólar 2
Tannalækjarhólar 2
311 Borgarnes
62.4 m2
Sumarhús
312
361 þ.kr./m2
22.500.000 kr.
Skoða eignina Fitjahlíð 34
Fitjahlíð_-_DJI_0710.jpg
Skoða eignina Fitjahlíð 34
Fitjahlíð 34
311 Borgarnes
29.8 m2
Sumarhús
211
705 þ.kr./m2
21.000.000 kr.
Skoða eignina Bugur, Hörgársveit
Bugur, Hörgársveit
604 Akureyri
47.2 m2
Sumarhús
111
464 þ.kr./m2
21.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin