Valhöll kynnir: Glæsilegt og vel við haldið raðhús á tveimur hæðum með bílskúr á besta stað í Laugarneshverfinu. Þrjú svefnherbergi. Skjólgóður og fallegur garður með timburverönd. Húsið er mikið endurnýjað bæði að utan sem innan.SMELLA HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDBANDBókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen lögfr. og löggiltum fasteignasala í gegnum netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.Skv. fasteignayfirliti HMS er húsið er skráð 152,5 fm. þar af er bílskúr skráður 24 fm. og íbúðin 128,5 fm.
Húsið skiptist þannig: 1. hæð: stofa, borðstofa, eldhús, snyrting, þvottahús, hol og forstofa. 2. hæð: þrjú herbergi, baðherbergi og hol.Nánari lýsing:1. hæð: komið er inn í flísalagða forstofu. Innaf forstofu er þvottahús með innréttingu. Úr forstofu er komið inn í rúmgott parketlagt hol með skápum. Innaf holi er flísalögð snyrting. Parket á gólfi. Vönduð tæki og sprautulökkuð innrétting. Akrýlsteinn á borðum. Niðurfellt helluborð. Borðkrókur. Stofan og borðstofan eru samliggjandi. Gólf er parketlagt. Úr borðstofu er gengið út í fallegan suður garð, þar er rúmgóð og skjólgóð timburverönd.
2. hæð: komið er upp teppalagðan stiga uppá parketlagt hol. Herbergin eru þrjú, en eitt þeirra hefur verið opnað út í hol og væri auðvelt að loka því aftur. Suður svalir eru út af hjónaherbergi en einnig er þar fataherbergi. Baðherbergið hefur verið stækkað og endurnýjað, flísalagt, baðkar og walk-in sturta og góð innréttingu, gólfhiti.
Endurbætur síðustu ára: Árið 2008 var húsið gagngert endurbætt á mjög smekklegan hátt með aðstoð fagmanna og arkitekts.
Að innan: var skipt um raflagnir, töflu, tengla og rofa sem og allar pípulagnir. Gólfhiti var settur í alla neðri hæð og á baðherbergi á efri hæð. Skipt var um ofna á efri hæð. Skipt var um hreinlætistæki og blöndunartæki í öllu húsinu – keypt voru VOLA tæki frá Tengi. Lumex aðstoðaði við hönnun á lýsingu í öllu húsinu. Næturlýsing er bæði innandyra og utandyra. Baðherherbergi var endurnýjað, stækkað, og endurhannað í hólf og gólf. Sett upp baðkar, ný sturta og innréttingar. Sömuleiðis var salerni á neðri hæð endurbætt. Svefnherbergi hjóna var þá einnig breytt, fataskápar fjarlægðir og fataherbergi hannað. Hurð inn í bókaherbergi var fjarlægð og sett rennihurð í staðinn – sömuleiðis var hurð inn í núverandi sjónvarpsherbergi fórnað en auðvelt er að setja þar hurð til að loka því herbergi. Sett var nýtt gólfefni á allt húsið – parket og flísar. Auk þess var skipt um allar gluggakistur í húsinu. Eldhús var endurhannað upp á nýtt og skipt um allar innréttingar. Skipt var um alla glugga og gler sem og svalahurðir sunnan megin í húsinu.
Utanhúss: Gert var við alla raðhúsalengjuna sumarið 2024 – múrviðgerðir, sprunguviðgerðir og tröppur lagaðar. Húsin máluð sem og gluggar, útidyr og svala hurðir. Skipt hefur verið um þakrennur og niðurfallsrör frá þeim norðan megin í húsunum. Skipt hefur verið um þakplötur að hluta. Bílastæði hafa verið löguð, hellulögð upp á nýtt og settur hiti í þau. Ný hurð sett á bílskúr sumarið 2025.
Um er að ræða fallegt endurnýjað raðhús á einstökum stað við Laugardalinn. Fyrir framan hús og aftan eru eingöngu göngustígar, sem tryggja næði og friðsæld. Í nánasta umhverfi er sundlaug, líkamsræktarstöð, og öll helsta þjónusta og skólar.Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.