Miklaborg kynnir: Falleg vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á annari hæð auk óskráðs rýmis í risi . Herbergi í kjallara með aðgang að snyrtingu. Það hentar vel fyrir unglinginn og sem vinnuherbergi.
Auk þess er geymsla í kjallara, stór garðaur og sameiginleg hellulögð verönd. Íbúðin er í rólegri götu og í göngufæri við þjónustu af fjölbreyttu tagi. Matvöruverslunin Bónus, útivistarsvæðin á Klambratúni, Listasafn Reykjavíkur og kaffihúsið á Kjarvalsstöðum eru dæmi um þjónustu rétt innan seilingar.
Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg fast: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.
Falleg, björt og notaleg íbúð í tveggja hæða, fjögurra íbúða húsi í rótgróinni götu í Holtunum.
Gengið er inn á sameiginlegan gang og þaðan upp upp á stigapall á annarri hæð. Stór og fallegur gluggi tengir hæðirnar saman. Af stigapallinum er gengið inn í íbúðina sem er með upprunalegu eikarparketi.
Þegar komið er í inn í íbúðina er fyrst komið inn í hol með búrskáp sem nær frá gólfi upp í loft. Á hægri hönd er gengið inn á baðherbergi með sturtu. Gluggi er á baðherbergi.
Á vinstri hönd er bjart eldhús með góðri innréttingu og borðkrók. Úr eldhúsinu er fallegt útsýni yfir vinsælan leikvöll.
Beint af augum er gengið inn í rúmgóða og bjarta stofu, með pottofnum og listum í lofti. Gluggar eru hvítmálaðir með djúpum og góðum gluggakistum.
Innaf stofunni er svefnherbergi með góðum klæðaskáp. Útfrá stofunni er gengið inn í borðstofu með innbyggðum bókahillum. Auðvelt að loka milli borðstofu og stofu og nýta rýmið sem herbergi,með inngangi frá forstof. Viðarstigi gengur frá borðstofunni upp í ris sem sem er jafnstórt íbúðinni að gólffleti en er ekki í fullri hæð. Það nýtist vel sem leik- eða svefnherbergi. Á björtum sumarkvöldum eða stjörnubjörtum vetrarkvöldum er töfrandi að horfa upp í himinninn gegnum loftgluggann í risinu. Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús, rúmgóð geymsla og rúmgott herbergi sem er tilvalið fyrir unglinginn eða heimaskrifstofuna.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
104 | 93,1 | 77,9 | ||
104 | 88,5 | 74,9 | ||
108 | 84,4 | 72,9 | ||
108 | 57,3 | 67,9 | ||
101 | 66,7 | 69,7 | ||
101 | 74,8 | 79,9 |