BYR fasteignasala kynnir til sölu Stafafellsfjöll 25a, 781 Hornafjörður. Heilsárs sumarhús á einni hæð með góðu útsýni yfir Lónið.
Húsið er timburhús, byggt árið 2010, samtals 58,1 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Eignin skiptist í: Forstofu, tvö svefnherbergi, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi og svefnloft. Útigeymsla og geymslukofi.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
Nánari lýsing:
Gengið er beint inn í alrými með borðstofu, stofu og eldhúsi.
Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu, standandi eldavél, upphengd uppþvottavél fylgir með, pláss fyrir ísskáp við enda innréttingu, ísskápur getur fylgt.
Frá alrými er gengið inn á stuttan gang, þar er fatahengi og útgengt.
Svefnherbergi með tveimur fataskápum (báðir lausir en fylgja með) og hákoju.
Svefnherbergi, tvíbreitt rúm fylgir með.
Baðherbergi, fíbóplötur á veggjum, standandi salerni, lítil vaskinnrétting, rúmgóður sturtuklefi sem er aflokaður, botn á gólfi og tvö gler. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara (báðar vélar geta fylgt með).
Svefnloft, pláss fyrir eitt rúm. Tvær geymslur eru undir súð.
Gólfefni, vínilparket frá Þ.Þorgrímssyni. Gólfhiti er í eigninni. Stýringar eru á veggjum.
Köld útigeymsla er áföst húsinu, þar er nýlegur hitakútur.
Geymsluskúr stendur fyrir ofan hús, köld geymsla.
Lóð og útisvæði: Stór timburverönd við framhlið hússins með fallegu útsýni yfir fjörðinn. Undir veröndinni hefur verið útbúið rúmgott geymslurými, lág lofthæð.
Framhlíð hússins hefur verið klædd með lóðréttri sedrusviðarklæðningu sem gefur húsinu nútímalegt yfirbragð. Gott bílaplan er við húsið, pláss fyrir 2-3 bíla.
Sumarið 2026 var skipt um frárennslislögn frá húsi að rotþró. Samhliða þeirri framkvæmt var meiri möl keyrt í bílaplanið.
Lóð er gróin, 2.000 m² að stærð samkvæmt fasteignayfrliti HMS. Lóðin er leigulóð, lóðarleigusamningur er útrunnin og skal seljandi endurnýja hann fyrir þinglýsingu afsals.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 232-1365. Stafafellsfjöll 25a, Sveitarfélagið Hornafjörður.
Stærð: Sumarbústaður 58,1 m².
Brunabótamat: 31.250.000 kr.
Fasteignamat: 20.750.000 kr.
Byggingarár: 2010.
Byggingarefni: timbur.
Eignarhald:
Rými 01.0101 Frístundahús 58,1 Brúttó m².
Rými 01.0102 Sólpallur 33,5 Brúttó m².
Rými 01.0103 Geymsluloft 12,7 Brúttó m².
Rými 01.0202 Fylgirými, þak 0 m².
Landeignanúmer: 188144. Sumarbústaðarland 2.000,0 m².