Borgir fasteignasala kynnir eignina Hofsvík 7, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer
234-4320 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Hofsvík 7 er skráð sem sumarhús í Grímsnesi nánar tiltekið í Hraunborgum í landi Sjómannadagsráðs um 45 mín akstur frá Reykjavík. Birt stærð 73.8 fm.
Um er að ræða hús sem er framleidd af Citic Construction sem er einn af stæðstu framleiðendum á húsum í heimi og er stálgrindar einingahús með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi/borðstofu/stofu, mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni. Hiti í gólfi frá Danfoss. Hallogen ljós í loftinu. Pallur með skjólvegg. Öryggisgler er í öllu húsinu. Auðvelt að setja upp heitan pott.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna M Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, johanna@borgir.is sími 8200788
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, bjarklind@borgir.is sími 6905123Nánari lýsing:
Inngangur: Gengið beint inní stofu/borðstofu með plast parketi á gólfi með gólfsíðum gluggum sem snúa til suðurs, mikilli lofthæð og fallegu útsýni.
Eldhús/borðstofa: Innrétting með tengi fyrir bakarofni, helluborð að gerðinni Vatti, vifta og vaskur.
Hjónaherbergi: Með plastparketi, gólfsíðum gluggum og hurð út á pall, innaf herbergi er baðherbergi með sturtuklefa, baðinnréttingu með vask og upphengt salerni. Físar á gólfi og veggjum.
Herbergi: með plastparketi.
Baðherbergi: Baðinnrétting, Salernið er upphengt. Gólfið er flísalagt og veggir upp í loft, sturtuklefi.
Skriðkjallari: Undir öllu húsinu
Annað/Umhverfi:
Lóðin er fallega staðsett með fallegu útsýni.
Lóðarleigusamningur í gildi til 31.ágúst 2067.
Öryggishlið inn á svæði og öflugt sumarhúsafélag.
Búið er að greiða fyrir heitt og kalt vatn ásamt rafmagni.
Rotþró í jörðu. Rafmagn tengt. Vegur og bílastæði.
Stutt er í allskyns afþreyingu, útivstarsvæði og þjónustu. Á svæðinu eru t.d. sundlaug með heitum potti og eimbaði, hjólhýsastæði, æfingagolfvöllur, minigolf, sparkvöllur, leiksvæði fyrir börn og verslun sem starfrækt er að sumarlagi. Stærri golfvöllur, verslanir og margt fleira er svo í nokkura mínútna akstursfjarlægð