ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Lágseyla 1, 260 Reykjanesbær, birt stærð eignar er 144.2 fm og þarf af er bílskúr 42.9 fm.Nánari upplýsingar veitir:
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur jona@allt.is.
Nánari lýsing eignar:Anddyri: Flísalagt með fataskáp
Eldhús: Harðparket á gólfum, viðarinnrétting, flísar á milli innréttinga. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð og björt í opnu rými, harðparket á gólfi, útgengt á suður sólpall.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf, baðkar með sturtu, salerni, góð innrétting með handlaug.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur.
Þvottahús: Flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hvítir efri skápar og innangengt í bílskúr.
Bílskúr: Rúmgóður með epoxý á gólfi, viðar innrétting, geymsluloft og útgengt á baklóð.
Hellulagt bílaplan með snjóbræðslukerfi.Frábær fjölskyldueign, stutt í leik- og grunnskóla. Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.