Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Ægisgata 20 Ólafsfirði - Mjög mikið endurnýjuð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum og með innbyggðum bílskúr - stærð 156,7 m²Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð: Forstofa, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Efri hæð: Gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofa.
Forstofa er með flísum á gólfi og nýlegri útidyrahurð. Úr forstofu er gengið inn á
gang með ljósu harð parketi á gólfi og við endann á ganginum er hurð út til suðurs á timbur verönd.
Eldhús, nýleg hvít sprautulökkuð innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu björtu rými með ljósu vínyl parketi á gólfi. Skápar undir sjónvarpi fylgir með við sölu eignar.
Stigi milli hæða er steyptir og með ljósu teppi. Undir stigapallinum er smá geymsluhorn.
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð og bæði nýlega endurnýjuð. Á neðri hæð eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, ljós innrétting, upphengt wc og sturta með innfelldum tækjum og handklæðaofn. Á efri hæðinni eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur, upphengt wc, baðkar, ofn innfellur í vegginn og opnanlegur gluggi. Innfelld lýsing er í lofti.
Svefnherbergin eru fjögur, tvö á neðri hæðinni með harðparketi á gólfi og tvö á efri hæðinni með vínyl parketi. Í hjónaherberginu er stór hvítur fataskápur og hurð út til suðurs á steyptar svalir. Á ganginum milli herbergja á efri hæðinni er stór fataskápur með rennihurðum.
Þvottahús er með flísum á gólfi, innréttingu með vask og opnanlegum glugga. Möguleiki er að setja upp handklæðaofn. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr.
Bílskúr er skráður 20,7 m² að stærð. Gólf er steypt og innkeyrsluhurð er með rafdrifnum opnara. Búið er að leggja raflögn fyrir bílhleðslustöð í bílskúrnum. Bílaplan var endurnýjað árið 2022, steypt og settar hitalagnir, lokað kerfi.
Annað- Búið er að endurnýja glugga, útidyrahurð og svalahurðar.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni að bílskúr undanskildum.
- Allar innihurðar hafa verið endurnýjaðar.
- Búið er að endurnýja rafmagnstengla og draga nýja raflagnir í hluta.
- Allar vatnslagnir eru endurnýjaðar - hitaveitugrind og frárennslislagnir út götu.
- Timburverönd er á baklóðinni.
- Húsið var málað að utan árið 2025.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.