Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu fallegt 4ra herbergja parhús á einni hæð ásamt bílskúr, á fallegri jaðarlóð á Eyrarbakka.
Um er að ræða nýlegt parhús sem byggt var árið 2019. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með lituðu bárujárni en aluzink er á þaki.
- Parhús á einni hæð með innangengum bílskúr
- Íbúðarhlutinn er 98,4 fm og bílskúrinn er 42,2 fm, samtals því 140,6 fm
- 3 rúmgóð svefnherbergi
- Hiti í gólfum. Lokað forhitarakerfi á miðstöð og neysluvatni
- Þvottahús með innréttingu
- Innangengur bílskúr
- Upptekið loft í bílskúr
- Jaðarlóð með óhindruðu útsýni
Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Bílskúr.
Nánari lýsing.
Forstofa: Parketlögð með fataskáp. 2 svefnherbergjanna eru af forstofu.
Gangur/hol: Af forstofu, parketlögð með næturlýsingu.
Eldhús: Ljós innrétting frá HTH á heilum vegg auk eyju. Gott skápapláss.Lýsing undir efri skápum. Flísar milli skápa. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, ofn í vinnuhæð, span helluborð og viftuháfur.
Stofan: Í sama rými og eldhúsið. Rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi og glugga á tvo vegu. Útgengi er út í lóð þaðan. Óhindrað útsýni.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parketlagt með fataskáp á heilum vegg..
2 Barnaherbergi: Bæði af forstofu, parketlögð með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum. Upphengt salerni, hvít vaskinnrétting og "walk inn" sturtuaðstaða, handklæðaofn, innfelld blöndunartæki og sturtugler. Næturlýsing er á baði. Rafmagnsvifta fyrir útsog.
Þvottahús: Er af holi og opnast inn í bílskúr og þaðan áfram út í lóð. Flísalagt með innréttingu á heilum vegg. Gert er ráð fyrir þurrkara og þvottavél í vinnuhæð. Rafmagnsvifta fyrir útsog.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi. Bílskúrinn er breiður og rúmgóður með innkeyrsluhurð. Upptekið loft. Hiti í gólfi.
Geymsla: Af bílskúr og með útgengi á lóð.
Lóð: Grófjöfnuð lóð, klár undir þökulögn. Sólúr er á útiljósum sem eru bæði fyrir framan og aftan við húsið.
Samantekt: Mjög snyrtilegt og fallegt 4ra herbergja parhús á einni hæð með óvenju rúmgóðum bílskúr. Staðsett í jaðri byggðar, lóðin liggur að óbyggðu svæði sem ekki verður byggt á samkvæmt gildandi skipulagi
Óhindrað útsýni frá húsinu allt frá Ingólfsfjalli austur um Bjarnarfell, Bláfell, Kerlingarfjöll, Vörðufell, Hestfjall, Heklu og Eyjafjallajökul.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða elin@valholl.is