Elka lgf. s. 863-8813 og TORG fasteignasala kynna fallega 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu hæð) í góðu fjölbýlishúsi við Ferjubakka 8 í 109 Reykjavík.
Íbúðin er töluvert uppgerð, björt og rúmgóð í mjög góðu fjölbýli. Skráð stærð skv. FMR 85,8 m², þar af sér geymsla í sameign 8,9 m².
Nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgf. í síma 665-8909 // gudny@fstorg.is eða Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Nánari lýsing:
Gengið er inní íbúðina af snyrilegum sameiginlegum stigagangi með nýlegu teppi á gólfum.
Forstofan er opin með nýlegu harðparketi á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt í opnu rými með eldhúsi. harðparket á gólfi.
Eldhús er með nýlegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, nýlegur ofn og spanhelluborð. Úgengi er úr alrými á skjólgóðar svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu, speglaskápur, baðkar með sturtuaðstðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Árið 2022 var skipt um blöndunartæki í baðkari/sturtu og á þessu ári var settur nýr vaskur og blöndunartæki.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp með rennihurðum. harðparket á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi
Sér geymsla er á jarðhæð, 8,9 m².
Sameign er snyrtileg með sameiginlegu þvottahúsi, fundarherbergi ásamt hjóla og vagnageymslu
Framkvæmdir á húsi og stigagangi.
2023: Bílaplan malbikað og búið er að setja upp 3 staura fyrir rafmagnshleðsu og komast 6 bílar að, rafhleiðslustöðvar eru í eigu húsfélags.
2021-2022: Fjölbýlishúsið múrað að utan og máluð, þak yfirfarið og málað ásamt því að skipt var um þakrennur, rör og fremsta hluta þaks og kjöls.
2021-2022: Stigagangur málaður og skipt um teppi, settur upp mynddyrasímar, nýjir póstkassar og ofn.
2019: Skipt um glugga og gler.
Nýlega er búið að skipta um rafmagnstöflu innan stigagangs og í íbúðinni.
Um er að ræða vel staðsetta eign í góðu fjölbýli í þessu vinsæla hverfi, mjög stutt er í alla þjónustu, verslun, skóla, leikskóla og samgöngur.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgf. í síma 665-8909 // gudny@fstorg.is eða Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.