LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega , bjarta og vel skipulagða 3.herbergja mikið endurnýjaða 87,4 m2 íbúð á jarðhæð við Kóngsbakka 9 með sérafnotarétti sem sem snýr út i sameiginlegan garð. Mikil veðursæld er í garðinum. Þvottahús er innan íbúðar. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 80,1 m2 auk 7,3 m2 geymslu. Samtals 87,4 m2. Nánari lýsing.Forstofa með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergisgangur með harðparketi á gólfi og nýlegum fataskáp með rennihurðum.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum með flísum á gólfi og veggjum, rúmgóð flísalögð sturta, innrétting með ljúflokunum á skúffum og speglaskáp fyrir ofan með led lýsingu , upphengt salerni.
Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu á tvo vegu með flísum á milli skápa, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu og uppþvottavél, AEG ofn með keramik helluborði, rúmgóður borðkrókur og flísalagt gólf, útgengi út á timburtröppur og þaðan út á hellulagða verönd og þaðan út á grasflöt með skjólgirðingu.Falleg sérsniðin gluggatjöld.
Þvottahúsið er innaf eldhúsi með flísalögðu gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara , góðar hillur.
Stofa með harðparketi á gólfi og fallegum sérsniðnum gluggatjöldum.
Geymsla með dúk á gólfi og hillum.
Helstu endurbætur á íbúð 2018
Baðherbergið endurnýjað frá A-Ö
Allt gólfefni endurnýjað fyrir utan eldhús og þvottahús.
Gluggatjöld í stofu og eldhúsi endurnýjuð.
Allar innihurðar endurnýjaðar.
2021 var skipt um alla tengla og rofa í allri íbúðinni.
2022-skipt um ofna í stofu, svefnherbergjum, og eldhúsi.
Endurbætur 2024 á ytra birði.
Verið er að skipta um báða svefnherbergisgluggana sem að seljendur greiða fyrir.Við sameigninlega innganginn er góð hjóla- og vagnageymsla . Að auki er sameiginleg geymsla fyrir íbúðir deila sem er þó nokkuð mikið rými sem er ekki talið með í fermetrum eignar. Þurrkherbergi er einnig í kjallara.
Stigagangurinn er mjög snyrtilegur. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is