163,9 fm raðhús á einni hæð með bílskúr við Lyngberg 5 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 140,3 fm og bílskúrinn 23,6 fm, samtals 163,9 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Forstofa með gestasalerni innaf. Rúmgott hol. Eldhús með hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, helluborð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Stofa og borðstofa í björtu alrými með útg. á lóð. Þvottahús er rúmgott með innréttingu, stæði fyrir vélar í vinnuhæð. Fjögur svefnherbergi voru upphaflega í húsinu en búið er að opna á milli tveggja barnaherbergja og eru því þrjú svefnherbergi í dag, auðvelt er að loka aftur á milli og útbúa þannig fjórða svefnherbergið. Baðherbergi með flísalagðri sturtu, veggsalerni og handklæðaofn.
Gólfefni hússins er parket nema votrými eru flísalögð.
Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi. Hiti, rafmagn og vatn er í bílskúrnum, stórt geymsluloft.
Lóðin er snyrtilega frágengin með hellulögðu bílaplani, fallegum gróðri, sólpalli og skjólveggjum bakatil ásamt grasverönd.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is