101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einksölu: Vel staðsetta þriggja herbergja 85,6 fm endaíbúð á Grandanum.
Sér stæði í bílakjallara 25,8 fm.
Forstofa rúmgóð og parketlagt gólf.
Opið rými stofu og eldhúss með útgengi á
svalir frá stofu.
Eldhús er með eldri innréttingu, eldavél og vifta.
Stofa/borðstofa samliggjandi og parketlagt gólf.
Svefnherbergi minna parketlagt.
Baðherbergi flísalagt gólf og hluti veggja,baðkar/sturta og salerni. Innrétting með skápum og handlaug.
Tenging er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Hjónaherbergi, parketlagt og með fataskápum.
Sér bílastæði í bílageymslu.Sér
geymsla í kjallara ásamt sameiginlegri
vagna og hjólageymslu.Íbúð þarfnast viðhalds/endurnýjunar.
Vel staðsett eign á vinsælum stað út á Granda þar sem verslun og öll helsta þjónusta er í göngufæri.Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.