Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2026

Kringlumýri 35

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
157.1 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
102.500.000 kr.
Fermetraverð
652.451 kr./m2
Fasteignamat
80.000.000 kr.
Brunabótamat
75.850.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1960
Garður
Svalir
Pallur
Sturtuklefi
Sérinng.
Fasteignanúmer
2148459
Landnúmer
148611
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurn. að hluta
Raflagnir
endurn. að hluta
Frárennslislagnir
endurn. fyrir einhverjum árum
Gluggar / Gler
Gott, endurnýjað
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til suðurs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Ummerki um leka í lofti við stigagang, hefur ekki lekið síðan núverandi eigandi flutti inn.  
Skarð í parketi á holi neðri hæðar þar sem áður var fataskápur.
Mikið endurnýjað 5 herbergja einbýli á tveimur hæðum með "bílskúr" við Kringlumýri á Akureyri. - samtals 157,1 m²

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti.
Efri hæð:
  Forstofa, salerni, eldhús, hol, stofa og eitt svefnherbergi.
Neðri hæð:  Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, hol, skrifstofa/vinnuherbergi og geymsla hvar áður var bílskúr.

Forstofan er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa og hol eru með parketi á gólfi.  Stór gluggi er til suðurs og þar er einnig farið út á svalir. 
Eldhús með korkdúk á gólfi og vandaðri innréttingu með flísum á milli skápa.  
Svefnherbergi eru fjögur í húsinu og auk vinnuherbergis.  Parket er á gólfum og fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergið er á neðri hæð og þar eru flísar á gólfi og veggjum, upphengt klósett, walk-sturta með gleri, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.  Salerni, með flísum á gólfi og upphengdu klósetti er við forstofu á efri hæð.
Þvottahúsið er flísalagt og þar er nýleg ljós innrétting með vaska og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.  Þar er jafnframt nýleg hurð og útgangur á verönd til suðurs.
Bílskúrinn er innbyggður og aðkeyrslan að honum er frá Löngumýrinni.  Skúrinn er skráður um 27 m² og nýtist núna sem geymsla og vinnurými.

Garðurinn gróðursæll og lóðin er á horni Kringlumýrar og Löngumýrar og stendur nokkuð hátt og því útsýnið gott.  Aðalinngangur í húsið er frá Kringlumýrinni á vesturhlið hússins og þar er nýlegt steypt bílastæði með snjóbræðslu (lokað kerfi), en einnig er bílastæði við vesturhlið hússins með aðkomu frá Löngumýri.

Annað
- Gluggar, gler og útihurðar hafa verið endurnýjaðar á síðustu 10 árum (einn lítill gluggi gamall)
- Hurð og gluggi í þvottahúsi var endurnýjað 2025.
- Bílaplan var steypt og sett í snjóbræðsla 2024.
- Geymsluskúr á lóð fylgir með við sölu.
- Geymsluloft er yfir íbúðinni að hluta og uppá það er farið úr svefnherbergi á efri hæð.
- Gólfhiti er á neðri hæð.
- Baðherbergi og eldhús hafa verið endurnýjuð á síðustu árum (10 - 15 árum)
- Ljósleiðari er kominn inn og tengur.
- Skemmtilegt útsýni er frá húsinu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/07/202042.100.000 kr.49.900.000 kr.157.1 m2317.632 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbraut 37
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:30. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbraut 37
Hraunbraut 37
200 Kópavogur
159,8 m2
Einbýlishús
423
920 þ.kr./m2
147.000.000 kr.
Skoða eignina Túngata 11
Bílskúr
Skoða eignina Túngata 11
Túngata 11
625 Ólafsfjörður
144,8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
269 þ.kr./m2
38.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Efsta hæð
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Kirkjuvegur 3
625 Ólafsfjörður
170,2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
615
247 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158,3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin