Fasteignaleitin
Skráð 4. ágúst 2026

Hraunbraut 37

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
159.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
151.900.000 kr.
Fermetraverð
950.563 kr./m2
Brunabótamat
74.600.000 kr.
Byggt 1963
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20626392
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt 159,8 fm einbýlishús á einstökum stað fyrir aftan Kópavogskirkju á Kársnesi, við rólega og lokaða götu. Stutt er í bókasafn, banka, heilsugæslu, sundlaug, leikskóla, grunnskóla og strætó, allt í 5-10 mínútna göngufæri. Húsið er á einni hæð og stendur á stórri lóð með miklum gróðri. Tvær sólarverandir eru við húsið og önnur þeirra er með heitum potti. Veröndin með pottinum var sett upp árið 2008.

Húsið telur anddyri, þvottahús, gestasnyrtingu, eldhús, stofu, gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Einnig er góður bílskúr.

Gengið er inn í flísalagt anddyri með tvöföldum innbyggðum fataskáp og gestasalerni. Flísalagt gólf.
Vinstra megin er gengið inn í rúmgott þvottahús, flísalagt með gólfhita. Gott vinnupláss er í þvottahúsinu og aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara. Hvít innrétting með miklu skápaplássi og skolvaski. Inn af þvottahúsinu er sturta. Útgengt er á skjólgóðan timburpall með heitum potti.
Rúmgott flísalagt hol sem tengir saman aðrar vistarverur hússins.
Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu. Blástursofn, vinnueyja, spanhelluborð og uppþvottavél. Gott vinnu- og skápapláss, en eldhúsið var allt endurnýjað árið 2005.
Rúmgóð borðstofa og setustofa með nýju parketlögðu gólfi, mikilli lofthæð og stórum gluggum sem gera rýmið einstaklega bjart. Útgengt er á sólríkan flísalagðan pall frá stofu.
Svefnherbergisálman er parketlögð en þar eru tvö barnaherbergi, bæði parketlögð og annað með innbyggðum fataskáp, rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp. Baðherbergi í enda gangsins er flísalagt með gólfhita, salerni, handlaug og baðkar með sturtu og glerskilrúmi. Í enda gangsins er einnig útgengt út á verönd.
Bílskúrinn er við hlið hússins og er rúmgóður. Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum og einnig rafmagn. Gólf er flísalagt og með ágætu rými fyrir sláttuvél og önnur verkfæri, einnig bíldekk, en útgangur er út í bakgarð. Löng innkeyrsla er að bílskúr og hægt væri að leggja nokkrum bílum.
Allar ofnlagnir voru endurnýjaðar árið 2009, húsið málað að utan árið 2020 og tveim árum síðar var skift um járn á þakinu ásamt tjörupappa og hluta timburs.

Garðurinn umhverfis húsið er einstaklega glæsilegur með miklum og fjölbreyttum gróðri. Grænt svæði er bak við hús og því er mikið næði í garðinum. Tvær sólarverandir og heitur pottur ásamt útigrilli.

Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Kristinsson, sími 588-9090 eða sverrir@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson, sími 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klukkuvellir 10
Bílskúr
Á einni hæð
Hleðslustöð
Opið hús:17. ágúst kl 17:15-17:45
Skoða eignina Klukkuvellir 10
Klukkuvellir 10
221 Hafnarfjörður
167.5 m2
Raðhús
514
746 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Jörundarholt 100
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Jörundarholt 100
300 Akranes
155.9 m2
Einbýlishús
413
593 þ.kr./m2
92.400.000 kr.
Skoða eignina Hólmatröð 3A
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hólmatröð 3A
Hólmatröð 3A
605 Akureyri
150.3 m2
Raðhús
413
698 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðagerði 16
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Rauðagerði 16
Rauðagerði 16
108 Reykjavík
162.7 m2
Hæð
54
716 þ.kr./m2
116.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin