Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Glæsilegt 400 fm einbýlishús í 101 Reykjavík. Um er að ræða eitt af virðulegri og glæsilegri húsum Reykjavíkur, staðsett á stórri hornlóð við Öldugötu og Ægisgötu í hjarta gamla Vesturbæjarins. Húsið er steinað að utan með hrafntinnu og silfurbergi sem gefur því einstakt og eftirtektarvert yfirbragð. Séríbúð er á jarðhæð.,
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Aðalhæð skiptist í fallegt anddyri, rúmgóðar samliggjandi stofur og borðstofu, eldhús með búri, gestasnyrtingu og bakinngang. Á efri hæð eru svefnherbergi, baðherbergi, gufubað og svalir með fallegu útsýni. Rúmgott risloft með góðri lofthæð og gluggum (ekki skráð í fermetratölu) býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Í kjallara er endurnýjuð og rúmgóð 4ra herbergja séríbúð með tveimur inngöngum. Bílskúr er skráður 40 fm.
Nánari lýsing: Við inngang tekur á móti marmaralagt og viðarklætt anddyri með sérsmíðuðum mahónískápum. Úr holi með fallegu parketi og stjörnumynstri liggur stórglæsilegur mahónístigi upp á efri hæð. Á aðalhæð eru þrjár samliggjandi stofur: bókastofa, dagstofa og borðstofa. Þar nýtur sín fallegt gegnheilt parket, m.a. með fiskibeina- og stjörnumynstri, auk vandaðra rennihurða með slípuðu gleri í frönskum stíl. Lofthæð er mikil og rými björt. Eldhús er inn af borðstofu með snyrtilegri innréttingu og aðgengi að litlu búri. Útgengt er úr eldhúsi út í garð. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, þar af hjónaherbergi, ásamt tveimur baðherbergjum, þar af eitt með gufubaði. Útgengt er út á svalir með víðáttumiklu útsýni yfir miðbæ og Vesturbæ.
Kjallaraíbúð: Í kjallara er sjálfstæð íbúð með sérinngangi. Þar er komið inn í flísalagt anddyri með opnu eldhúsi, gangur að þremur herbergjum og flísalagt baðherbergi með sturtu. Þvottahús er á hæðinni með útgengi í garð.
Lóð og garður: Garðurinn er einstaklega fallegur og vel hannaður, með mosavaxnum steinum, trjágróðri og blómabeðum. Í framgarði er steinhlaðið beð með gosbrunni. Lóðin er 461 fm. Bílskúrinn, sem er 40 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, er klæddur sama efni og húsið en þarfnast endurbóta. Húsið var teiknað af Þorleifur Eyjólfsson, sem var frumkvöðull í þróun nútímalegrar húsagerðar á Íslandi og innleiddi straumlínulag í íslenskan arkitektúr á sínum tíma.
Staðsetning: Einstök staðsetning þar sem miðborgin og Grandinn eru í örstuttri göngufjarlægð. Öll helsta þjónusta, verslanir, kaffihús og veitingastaðir eru í næsta nágrenni, auk skóla á öllum stigum og fjölbreytts menningarlífs.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
397.6 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2001587
Landnúmer
100499
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað.
Raflagnir
Upprunarlegt.
Frárennslislagnir
Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Þarfnast viðhalds.
Þak
þarfnast viðhalds.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Glæsilegt 400 fm einbýlishús í 101 Reykjavík. Um er að ræða eitt af virðulegri og glæsilegri húsum Reykjavíkur, staðsett á stórri hornlóð við Öldugötu og Ægisgötu í hjarta gamla Vesturbæjarins. Húsið er steinað að utan með hrafntinnu og silfurbergi sem gefur því einstakt og eftirtektarvert yfirbragð. Séríbúð er á jarðhæð.,
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Aðalhæð skiptist í fallegt anddyri, rúmgóðar samliggjandi stofur og borðstofu, eldhús með búri, gestasnyrtingu og bakinngang. Á efri hæð eru svefnherbergi, baðherbergi, gufubað og svalir með fallegu útsýni. Rúmgott risloft með góðri lofthæð og gluggum (ekki skráð í fermetratölu) býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Í kjallara er endurnýjuð og rúmgóð 4ra herbergja séríbúð með tveimur inngöngum. Bílskúr er skráður 40 fm.
Nánari lýsing: Við inngang tekur á móti marmaralagt og viðarklætt anddyri með sérsmíðuðum mahónískápum. Úr holi með fallegu parketi og stjörnumynstri liggur stórglæsilegur mahónístigi upp á efri hæð. Á aðalhæð eru þrjár samliggjandi stofur: bókastofa, dagstofa og borðstofa. Þar nýtur sín fallegt gegnheilt parket, m.a. með fiskibeina- og stjörnumynstri, auk vandaðra rennihurða með slípuðu gleri í frönskum stíl. Lofthæð er mikil og rými björt. Eldhús er inn af borðstofu með snyrtilegri innréttingu og aðgengi að litlu búri. Útgengt er úr eldhúsi út í garð. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, þar af hjónaherbergi, ásamt tveimur baðherbergjum, þar af eitt með gufubaði. Útgengt er út á svalir með víðáttumiklu útsýni yfir miðbæ og Vesturbæ.
Kjallaraíbúð: Í kjallara er sjálfstæð íbúð með sérinngangi. Þar er komið inn í flísalagt anddyri með opnu eldhúsi, gangur að þremur herbergjum og flísalagt baðherbergi með sturtu. Þvottahús er á hæðinni með útgengi í garð.
Lóð og garður: Garðurinn er einstaklega fallegur og vel hannaður, með mosavaxnum steinum, trjágróðri og blómabeðum. Í framgarði er steinhlaðið beð með gosbrunni. Lóðin er 461 fm. Bílskúrinn, sem er 40 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, er klæddur sama efni og húsið en þarfnast endurbóta. Húsið var teiknað af Þorleifur Eyjólfsson, sem var frumkvöðull í þróun nútímalegrar húsagerðar á Íslandi og innleiddi straumlínulag í íslenskan arkitektúr á sínum tíma.
Staðsetning: Einstök staðsetning þar sem miðborgin og Grandinn eru í örstuttri göngufjarlægð. Öll helsta þjónusta, verslanir, kaffihús og veitingastaðir eru í næsta nágrenni, auk skóla á öllum stigum og fjölbreytts menningarlífs.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.