ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Aðalgötu 6, 230 Reykjanesbær, íbúð 02-02, fastanúmer 208-6802. Eignin er skráð 117.1 fm samkvæmt FMR, þar af er bílskúr 24.7 fm, einnig fylgir eigninni hlutdeild í háalofti, þar hefur verið útbúið rúmgott tómstundarými með glugga. Eignin hefur fengið gott viðhald, aðeins einn eigandi frá upphafi, getur afhenst fljótt.
Í
búðin er á efri hæð í fjórbýli og er mjög björt og snyrtileg
. Eignin samanstendur af góðu alrými, þar er forstofa, stofa, borðstofa og eldhús. Góðar yfirbyggðar svalir, útgengt á þær frá alrými. Rúmgott þvottahús er inn af eldhúsi með góðri aðstöðu. Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum og rúmgóða sturtu. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni auk tómstundaherbergis/geymslu í risi. Gott hafútsýni frá eldhúsi og svefnherbergjum. Bílskúr er snyrtilegur með útgengi út á sólríkan sólpall sem tilheyrir íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is.Nánari lýsing eignar:Eldhús: Hefur hvíta innréttingu með nýlegum tækjum, þar er bjartur borðkrókur með hafútsýni, parket á gólfum.
Þvottahús: Hefur góða innréttingu og hefur verið nýtt sem þvottahús, geymsla og hluti af eldhúsi.
Stofa og borðstofa: Björt stofa með stórum gluggum og parketi á gólfum, útgengt út á yfirbyggðar svalir frá borðstofu.
Forstofa: Opin og björt með klæðaskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott með heilum vegg af klæðaskápum, stór horngluggi með hafútsýni, parket á gólfum.
Herbergi: Góð stærð, bjart með hafútsýni og klæðaskáp, parket á gólfi.
Risherbergi/geymsla í risi: Gengið er upp í sameiginlegt ris/háaloft frá sameign. Þar er búið að klæða og einangra herbergi í fjórðungi risins sem tilheyrir íbúðinni, hefur verið nýtt sem tómstundaherbergi, með glugga.
Baðherbergi: Flísalagt á veggjum og gólfi, upphengt salerni, hvít innrétting með ofan á lögðum vaski, speglaskáp og walk inn sturtu.
Bílskúr: Sjálfvirkur hurðaopnari, gluggar og útgengi út á sólpall. Nýr dúkur á þaki bílskúrs.
Sólpallur: Fallegur sólpallur fylgir eigninni, í baklóð við hlið bílskúrs.
Bílastæði: Eitt bílastæði fylgir eigninni að framanverðu húsinu.
Umhverfi: Eignin er virkilega vel staðsett í miðbæ Keflavíkur í göngufæri við allar helstu verslanir, veitingastaði, þjónustu og gönguleiðir með sjávarsíðunni.
Bókaðu skoðun og ég sýni þér samdægurs: unnur@allt.is eða í síma 8682555ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.