Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Háholt 24

Jörð/LóðVesturland/Akranes-301
8,000 m2
Verð
4.000.000 kr.
Fermetraverð
500 kr./m2
Fasteignamat
2.840.000 kr.
Fasteignanúmer
2334264
Landnúmer
213270
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir sumarhúsalóðina HÁHOLT 24 Í HVALFJARÐARSVEIT.
Um er að ræða einstaklega fallega og gróðursæla eignarlóð á deiliskipulögðu frístundasvæði í landi Narfastaða, undir fjallinu Ölver í Hvalfjarðarsveit.
Lóðin er skráð 8.000 m² að stærð samkvæmt fasteignaskrá.
Háholt 24 stendur á friðsælum og fallegum stað með miklu næði og fallegu útsýni yfir umliggjandi sveitir og til fjalla. 
Lóðin er í um 13 km fjarlægð frá Borgarnesi og um 60 km frá Reykjavík.  Smellið hér til að sjá staðsetningu á google maps.

Háholt 24 er innan deiliskipulagðrar frístundabyggðar og samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagi er skilgreindur byggingarreitur innan lóðarinnar.
Heimilt er að reisa einn sumarbústað, allt að 120 m² að stærð, auk allt að 25 m² gestahúss eða útigeymslu.
Hús skulu falla vel að landslagi og vera sem minnst áberandi í umhverfinu. Samkvæmt skipulagsskilmálum skulu þau vera úr timbri, klædd timburklæðningu og í jarðlitum. Mesta leyfilega vegghæð er 5 metrar og mænishæð má að hámarki vera 6 metrar frá hæð jarðvegs umhverfis húsið.
Í deiliskipulagi er gert ráð fyrir að frístundabyggðin tengist vatnsveitu Félags sumarhúsaeigenda við Ölver, hitaveitukerfi og rafveitukerfi RARIK. Gera skal rotþró við hvert sumarhús og ber lóðarhafi kostnað af frárennslislögnum og rotþró.

Hið selda er eingöngu lóðarspildan; þegar hafa verið greiddar 600.000 kr. í stofngjald og framlag til Félags sumarhúsaeigenda vegna fyrirhugaðra framkvæmda við lagningu vatns-, rafmagns- og ljósleiðaralagna ásamt borun eftir köldu vatni og stofnun vatnsveitu, en kaupandi ber sjálfur kostnað af því að styrkja veg að lóðinni ef þess þarf og leggja vatn og rafmagn frá aðalvegi að lóðarmörkum.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkihlíð 40
Skoða eignina Birkihlíð 40
Birkihlíð 40
301 Akranes
7,243 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
5.600.000 kr.
Skoða eignina Ferjubakki 12
Skoða eignina Ferjubakki 12
Ferjubakki 12
805 Selfoss
8,341 m2
Jörð/Lóð
2 þ.kr./m2
14.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 45 LÓÐ
Selvogsbraut 45 LÓÐ
815 Þorlákshöfn
660.3 m2
Jörð/Lóð
98 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Kjóastaðir 2
Skoða eignina Kjóastaðir 2
Kjóastaðir 2
806 Selfoss
2,109,164.9 m2
Jörð/Lóð
318
0 þ.kr./m2
379.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin