Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2024
Deila eign
Deila

Dagverðarnes 4

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
33 m2
1 Baðherb.
Verð
25.900.000 kr.
Fermetraverð
784.848 kr./m2
Fasteignamat
19.400.000 kr.
Brunabótamat
22.000.000 kr.
Mynd af Árni Björn Erlingsson
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Byggt 1992
Fasteignanúmer
2106840
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Svalir
Sólpallur
Upphitun
rafmagns
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Starfsmanni Fasteignalands hefur ekki verið gert kunnugt um galla aðra en að í sjónskoðun, sást að kominn er tími á að yfirfara glugga og gler, þessi upptalning þarf ekki að vera endanleg og mælum við alltaf með að eign sé skoðuð með fagmanni.
Dagverðarnes, Skorradalur.  Glæsilegt útsýni. Lokað svæði (símahlið). Gott aðgengi að vatninu fyrir báta.

Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali og Fasteignaland ehf. kynna eignina Dagverðarnes 4, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 210-6840 ásamt öllu því sem eigninni fylgir.

Fallegt sumarhús í Dagverðarnesi í Skorradal. Eignin er á 2.500 fm eignarlandi með glæsilegu útsýni yfir Skorradalsvatn. Um er að ræða sumarhús sem er skráð 33 fm samkv. HMS. Húsið er byggt árið 1992 og er frágangur allur til fyrirmyndar. 

Lýsing eignar:
Forstofa með flísaparketi á gólfi og góðu fatahengi. Tvö svefnherbergi, annað með flísaparketi á gólfi og hitt með korkflísum á gólfi. Baðherbergi með korkflísum á gólfi og sturtuklefa. Stofan er með góðri lofthæð, korkflísum á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með korkflísum á gólfi, fallegri viðarinnréttingu og sambyggðri eldavél.

Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu er við húsið með glæsilegu útsýni yfir Skorradalsvatn.

Í þessu húsi eru rafmagnsofnar og hitakútur fyrir neysluvatn.

Gott aðgengi er að vatninu fyrir báta.

Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).

Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.  


Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/08/201610.650.000 kr.15.400.000 kr.33 m2466.666 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fitjahlíð 66
Skoða eignina Fitjahlíð 66
Fitjahlíð 66
311 Borgarnes
44.5 m2
Sumarhús
21
560 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Ártröð 13
Skoða eignina Ártröð 13
Ártröð 13
301 Akranes
50.5 m2
Sumarhús
12
493 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Skógar
Skoða eignina Skógar
Skógar
320 Reykholt í Borgarfirði
42.6 m2
Sumarhús
312
610 þ.kr./m2
26.000.000 kr.
Skoða eignina Kílhraunsvegur 12
Kílhraunsvegur 12
804 Selfoss
22 m2
Sumarhús
21
1136 þ.kr./m2
25.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache