Fasteignaleitin
Skráð 19. ágúst 2026

Hringhamar 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
84.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.400.000 kr.
Fermetraverð
824.228 kr./m2
Brunabótamat
59.010.000 kr.
Byggt 2023
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
252918749
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Atli Karl á Lind fasteignasölu kynnir í einkasölu glæsilega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með þvottahúsi og palli. Eignin er parketlögð með viðar fiskibeinaparketi og skartar glæsilegri aukinni lofthæð. Eigninni fylgir einnig stæði í bílageymslu.

Eignin Hringhamar 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-9187, stærð er 84.2 fm þar af 4.4 fm geymsla.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun hjá:
Atli Karl Pálmason - Löggiltur fasteignasala / 662 4252 / atli@fastlind.is


Eignin skiptist í: Forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi I, svefnherbergi ll og þvottahús.

Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og fataskápur frá Axis.
Stofa er rúmgóð í opnu alrými með parketi á gólfi. Útgengi út á lokaðan viðarpall (11,7 fm)
Eldhús með parketi á gólfi og eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.
Baðherbergi er með innréttingu frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki við sturtu. Gólf er flísalagt og veggir að hluta upp í loft.
Svefnherbergi I er parketlagt með fataskáp af vandaðri gerð frá Axis (11,1 fm).
Svefnherbergi II er parketlagt með fataskáp af vandaðri gerð frá Axis (9,7 fm).
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurkara (3,1 fm).

Geymsla í sameign (merkt 129 og er 4,4 fm).
Eigninni fylgir stæði í bílageymslu (merkt B67).

Allar íbúðir eru búnar með sérstöku loftræstiskerfi. Umframgæði sem tryggja mjög góð loftskipti og góða nýtingu á varma. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis. Húsið er staðsteypt. Útveggir einangraðir og klæddir að utan með álklæðningu.

Hringhamar 13 er 4 hæðir með 15 íbúðum. Heildarfjöldi bílastæða á lóðinni er 160. Þau skiptast þannig að 84 almenn stæði eru í sameiginlegum bílakjallara auk 5 stæða fyrir hreyfihamlaða. Á lóðinni eru 65 almenn stæði auk 6 stæða fyrir hreyfihamlaða.

Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Hringhamar 13, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-9187 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir Atli Karl Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 6624252, tölvupóstur atli@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
101 Reykjavík fasteignasala
www.101.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Nónhamar 4
Skoða eignina Nónhamar 4
Nónhamar 4
221 Hafnarfjörður
80 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 307
Strandgata 26 íb. 307
220 Hafnarfjörður
87.6 m2
Fjölbýlishús
111
1083 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26
Skoða eignina Strandgata 26
Strandgata 26
220 Hafnarfjörður
62.8 m2
Fjölbýlishús
111
1193 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5 íb. 502
Bílastæði
Efsta hæð
Ásvellir 5 íb. 502
221 Hafnarfjörður
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin