Skráð 22. okt. 2025

Stekkur 0

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-271
166,000 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
20.650.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Fasteignanúmer
2081909
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Domusnova og Árni Helga fasteignasali hafa fengið í einkasölu býli innan Mosfellsbæjar skammt sunnan Hafravatns á Nesjavallaleið. Landið er 16,6 hektarar að stærð en fyrir liggur deiliskipulag sem samþykkt hefur verið í skipulagsnefnd og er þar um að ræða byggingarreit á landinu sem er 6,1ha að stærð. Um er að ræða lögbýli sem hefur fengið nafnið Stekkur.

Um er að ræða land sem er samtals 16,6 ha og sam­kvæmt samþykktu deiliskipulagi eru sýndir tveir byggingarreitir þar sem heimilt verður að byggja íbúðarhúsnæði, mest 300 m² auk kjallara á einni til tveimur hæðum og einnig að reisa vélaskemmu mest 800 m² og 300fm gripahúsi og 100fm ylræktarhúsi. Að­koma er frá Nesjavalla­vegi. Skipulagstillagan samanstendur af greinargerð og skipulagsuppdrætti í skalanum 1:1000, dags. 05.02.2024. Land þetta er skráð sem 16,6ha og er gert ráð fyrir að selja það í heild sinni. 
Úr skipulagstillögu: Heimilað hefur verið nýtt býli, Stekkur, þar sem heimilt verður að byggja húsnæði og stunda frístundabúskap með sjálfbærri lífrænni ræktun matvæla s.s. rótar- og garðávaxta, ylrækt og. skógrækt til skjólmyndurnar. Einnig að heimilt verði að reisa vélaskemmu, hesthús og stunda hrossarækt með tilheyrandi möguleikum til útreiðar í fallegu umhverfi. Jafnframt er ætlunin að hefta frekari útbreiðslu lúpínu innan spildunnar.
Skv. samþykkt Mosfellsbæjar frá 6.9.2024 er um að ræða lögbýli.

Landið verður afhent við undirritun kaupsamnings.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
GötuheitiPóstnr.m2Verð
271
166000
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin