Fasteignaleitin
Skráð 27. okt. 2026

Krosshamrar 23

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
198.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
807.168 kr./m2
Brunabótamat
111.100.000 kr.
Byggt 1988
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20386175
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

GLÆSILEGT EINBÝLI MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR Á VINSÆLUM STAÐ Í GRAFARVOGI.

Samkvæmt skráningu hjá HMS, fasteignaskrá er birt flatarmál eignarinnar 198,1 fm.

Um er að ræða einbýli á einni hæð með rúmgóðum innbyggðum bílskúr, húsið er steinsteypt og byggð árið 1988 á 506 fm. lóð í botnlangagötu.
Gengið er inn rúmgóða forstofu, en þar er gestasnyrting og eitt forstofu- eða svefnherbergi. Úr forstofunni er gengið inn í gang sem liggur til hægri að eldhúsinu en til vinstri er gengið inn í sjónvarpshol og svefnálmuna. Stofan er beint inn af innganginum, en hún er mjög rúmgóð með góðri borðstofu. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í svefnálmunni og stórt baðherbergi. Gengið er úr sjónvarpsholinu inn í þvottahúsið og þaðan inn í bílskúrinn. Mjög góð bílastæði eru við húsið en stéttin fyrir framan húsið er með upphitun.

Forstofa/gestasnyrting: Mjög rúmgóð flísalögð forstofa og góðir fataskápar, gestasnyrtingin er flísalögð og upphengt salerni.
Eldhús: Rúmgott og innrétting með góðu skápa- og broðplássi, flísar á gólfi.
Stofur: Bæði stofan og borðstofan eru bjartar og parketlagðar, arinn og útgangur er út á stóra suðvestur verönd úr stofunni með heitum potti. 
Svefnherbergi: Fjögur rúmgóð parketlögð svefnherbergi eru í húsinu, góðir fataskápar eru í hjónaherberginu og einnig í tveimur öðrum herbergjum.
Baðherbergi: Glæsilegt, flísalagt og góðar innréttingar bæði undir handlaug og og á móti, sturta og baðkar.
Þvottahús: Aðgengilegt með góðum innréttingum og borðplássi, skolvaskur og flísar á gólfi, útgangur út í bakgarðinn.
Bílskúr: Rúmgóður með epoxy gólfi. Skráður 43,2 fm. Stórt bílaplan er fyrir framan húsið með upphitun.
Garður: Snyrtilegur frágangur á lóðinni og heitur pottur á afgirtri veröndinni. bílaplan er stórt og hellulagt, grasflöt er í bakgarðinum með litlum garðáhaldaskúr.

Að sögn eigenda hefur húsið alltaf fengið gott viðhald, árið 2011 var húsið steinað að utan, hurðir voru endurnýjaðar með fellilistum um árið 2016, árið 2021 var sett rafdrifin bílskúrshurð, árið 2023 var sett nýtt gler og húsið yfirfarið og árið 2025 var þakið endurnýjað.

Falleg, vel skipulögð og snyrtileg eign á mjög góðum og barnvænum stað í Grafarvogi.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalhús 61
Heitur pottur
Skoða eignina Dalhús 61
Dalhús 61
112 Reykjavík
211,6 m2
Raðhús
624
741 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Garðsstaðir 5
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:12. nóv. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Garðsstaðir 5
Garðsstaðir 5
112 Reykjavík
178,4 m2
Raðhús
413
801 þ.kr./m2
142.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 89
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Hraunbær 89
Hraunbær 89
110 Reykjavík
187,1 m2
Raðhús
513
662 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Blikatjörn 6
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Blikatjörn 6
Blikatjörn 6
260 Reykjanesbær
207 m2
Einbýlishús
413
555 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin