Jón Smári Einarsson lgf. s. 8606400 og Fasteignaland kynna sumarhúsið Norðurnes 55 í landi Möðruvalla, 276 Kjós.
Sumarhúsið Norðurnes 55 er skráð sem hér segir hjá HMS: Birt stærð 48.6 fm og 2.523 fm eignarlóð. Sumarhúsið var byggt 1998.Lýsing:Forstofa með fatahengi og parket á gólfi.
Stofa og eldhús er í opnu parketlögðu rými. Í
eldhúsi er uppþvottavél og spanhelluborð í nýlegri innréttingu. Í stofu er
kamína og þaðan er útgengt er út á
verönd.
Baðherbergi með sturtuklefa, salerni, handlaug. Þar er um 70L hitakútur fyrir neysluvatn. Flísar á gólfi.
Tvö svefnherbergi, það stærra er með tvíbreiðu rúmi og kojur eru í hinu herberginu. Parket á gólfum.
Lítil
geymsla er fyrir utan inngang.
Tveir
geymsluskúrar eru á lóðinni, báðir í hafa verið í betra ástandi.
Húsið er
upphitað með rafmagnsofnum.
Að utan er húsið klætt með standandi
óheflaðri furu. Þak með bárujárni. Góð
timburverönd umlykur húsið að norðan-, vestan- og sunnanverðu.
Undirstöður undir húsi eru
steyptir stólpar.
Lóðin er
eignarland, með kjarri og trjám. Bílaplan fyrir tvo bíla.Innbú getur fylgt með utan persónulegra muna.
Vefur sumarbústaðarfélagsins á svæðinu:
www.nordurnes.is.
Möguleiki er að taka inn ljósleiðara og hitaveitu sem er kominn að lóðarmörkum.Vel hefur verið hugsað um bústaðinn og m.a. eftirfarandi gert:2026 - Eldhús endurnýjað.
2026 - Vaskaskápur og speglaskápur á baði.
2025 - Skipt um golfplötur að hluta í svefnherbergi og við útidyr.
2025 - Skipt um parket.
2025 - Skipt um glugga í herbergjum.
2024 - Barnaherbergi endurgert.
2024 - Gluggar málaðir að utan og gluggarammar lagaðir og málaðir.
2024 - Smart-ofnakerfi sett upp.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda er á svæðinu er um 70.000 kr.
Svæðið er lokað með hliði (símahlið).
Staðsetning og nærumhverfi:Sumarhúsið er með mikilfenglegu útsýni og kyrrð rétt hjá Laxá í Kjós og keyrt er meðfram ánni. Sandfell er í norður og Skálafell rís í suðri. Þegar horft er í norður er Vindáshlíð í hlíðinni rétt hjá. Sjón er sögu ríkari.
Frábær staðsetning á sumarhúsi í nálægð við höfuðborgarsvæðið, en þangað er aðeins um 30 mín. akstur.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.iss. 860-6400Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.