Rúmgóð og vel skipulögð þriggja herbergja 75,6 fm íbúð á annari hæð við Löngumýri 18 í Garðabæ. Húsið var múrviðgert árið 2021. Sérmerkt bílastæði á lóð. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is Nánari lýsing:
Anddyri með innbyggðum skápum, harðparket á gólfi.
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf og sturtuklefa, nýleg innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi er teiknað sem vinnuherbergi en hægt að nýta sem barnaherbergi.
Eldhúsið er opið, með hvítum innréttingum og góðu skápaplássi.
Borðstofa/stofa eru saman í opnu rými, útgengt úr stofu út á rúmgóðar svalir til suðvesturs.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 71,6 fm en til viðbótar er 4 fm óskráð geymsla og er því eignin samtals 75,6 fm.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.